leyfi til hvalveiða.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Mér þykir þetta ganga býsna hægt allt og í samhengi hlutanna og í ljósi sögunnar er þetta auðvitað ótrúleg framganga gagnvart þeim rekstri sem þarna hefur verið stundaður um langa hríð. Mér heyrist á öllu að ég fái ekki frekari upplýsingar frá ráðherranum varðandi afstöðu hennar til málsins sem birtist næstkomandi þriðjudag en mig langar til að spyrja ráðherrann mjög afmarkaðrar spurningar: Hvers vegna var þessi umsagnarbeiðni, sem send var til töluverðs fjölda aðila, flestra þeirra, næstum því allra aðila sem ekki eru lögbundnir umsagnaraðilar eða reglubundnir samkvæmt því regluverki sem um er talað, hvers vegna var beðið mánuðum saman með að senda þetta til umsagnar þessara hagaðila sem ráðherrann ákvað á endanum að senda málið til?