154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

leyfi til hvalveiða.

[10:40]
Horfa

matvælaráðherra (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Mér þótti það tilhlýðilegt eftir að ég var búin að kynna mér stöðuna, lesa gögn sem safnað var saman til að undirbúa mína ákvörðun. Í ljósi þess hversu margt hefur breyst síðan leyfið var gefið út síðast 2019 þá þykir mér bara ástæða til þess og ekki síst í ljósi þess sem fjallað hefur verið um hjá Alþjóðahvalveiðiráðinu og NAMCO og öðrum slíkum stofnunum hér innan lands í tengslum við áhrif þess, þ.e. hvað veiðar hafa áhrif á og annað slíkt. Það er margt og mikið undir. Það eru ekki bara veiðarnar að mínu mati per se og þess vegna taldi ég ástæðu til þess að fá álit annarra aðila heldur en bara þeirra sem lögum samkvæmt ber að sækja álit til þannig að þeim gefist þess kostur að segja álit sitt. (Forseti hringir.) Ég fór ekki af stað í þetta fyrr en ég var búin að safna gögnum til að undirbyggja það (Forseti hringir.) að þetta væri sú vegferð sem ég vildi fara í. Það er í rauninni það sem gerðist og ég minni aftur á (Forseti hringir.) að það er ekkert nýtt, að það taki talsvert langan tíma. Þó að það sé kannski ekki endilega til fyrirmyndar í alla staði þá er ekkert nýtt undir sólinni í þessu og margir ráðherrar í öðrum flokkum (Forseti hringir.) sem hafa tekið sér jafn langan tíma.

(Forseti (BÁ): Forseti minnir á að ræðutími í óundirbúnum fyrirspurnum er tvær mínútur í fyrri ræðu og ein mínúta í seinni ræðu hjá öllum sem til máls taka.)