154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

regluverk almannatrygginga.

[10:42]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegur forseti. Þann 1. júní síðastliðinn kom margþekkt kjaftshögg á almannatryggingaþega, skerðingardagurinn mikli. Yfir 80% almannatryggingaþega fengu mismiklar skerðingar og eiga að greiða á mánuði á bilinu 10.000, næstu 12 mánuðina, að ríflega 50.000 og þar yfir. Ég velti fyrir mér hvernig stendur á því að ár eftir ár hafi þessu regluverki verið leyft að þróast í þessa átt þar sem, við skulum segja 80% eða 52.000 einstaklingar eru að fá á sig skerðingar og annað slíkt, eru að fá þær meira og minna vegna þess að það er ómöguleiki fyrir þá að reikna út hvað þeir eru að fá úr lífeyrissjóðnum sínum. Núna á meðan við erum að ganga í gegnum verðbólgu og miklar sviptingar í öllu okkar efnahagslífi og lífeyrissjóðir eru að reyna að uppfæra sínar greiðslur í samræmi við það til að koma til móts við stöðuna eins og hún er í dag þá eru það í rauninni fórnarlömbin, þeir sem síst skyldi, sem hafa það verst og hafa langminnst á milli handanna. Þetta er kvíðvænlegt hvert einasta ár. Fólk er í góðri trú um hver áramót. Það sendir sín gögn til Tryggingastofnunar, það sendir inn tekjuáætlun sem það er að búast við að sjá það árið. Flestir hafa engar tekjur.

Mig langar til að spyrja hæstv. fjármálaráðherra að því hvort hann væri nú ekki tilbúinn í að koma með okkur í þá vegferð, öllum sem einu, að reyna að koma upp þannig regluverki hér að einstaklingar lendi ekki ítrekað í þessum áföllum hvern einasta 1. júní á hverju einasta ári og sennilega aldrei verið verra en einmitt nú.