154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

regluverk almannatrygginga.

[10:48]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég verð að leiðrétta hv. þingmann með síðustu yfirlýsingar sínar. Það er nú þannig að frumvarpið um hina miklu breytingu — sem ég tel að verði mjög jákvæð, ekki bara vegna þess að hún eykur klárlega ráðstöfunartekjur öryrkja og verður réttlátari, heldur held ég líka að kerfið verði betra og þar af leiðandi kannski minna um það sem hv. þingmaður var upphaflega að beina fyrirspurninni að. Ég hefði alla vega gaman af því að sjá hvort það hafi orðið breyting á þegar við einfölduðum kerfi hjá ellilífeyrisþegum, hvort við munum sjá sömu þróun þar. Það er rangt hjá hv. þingmanni að þessir fjármunir hafi verið notaðir til einhvers annars. En frumvarpið er hér enn til meðhöndlunar á þinginu og það er eðlilegt að menn fái síðan ákveðinn umþóttunartíma og tíma til að gera þær reglugerðir og breytingar á kerfinu sem til þarf. Gildistíminn er 1. september 2025. Ég er sannfærður um að það verði talsverðar jákvæðar breytingar við þessa breytingu.