154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

horfur í efnahagsmálum og hagstjórn.

[10:49]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Já, það virðist ekki hreyfa mikið við ríkisstjórninni að á sama tíma og landsframleiðsla er að dragast saman um 4% fær enn ein fjármálaáætlunin algera falleinkunn, eins og frá atvinnulífinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. En reyndar er það nú svo að einu prósentutölurnar sem fá blóðið til að hreyfast eitthvað hjá þessari ríkisstjórn eru fallandi fylgistölur en ekki 6,2% verðbólga, ekki 9,25% stýrivextir, ekki 17% yfirdráttarvextir. Við höfum síðustu daga heyrt fréttir af þrengingum í ferðaþjónustu, 10–15% samdráttur á árinu og enn hærri tölur á svæðum fjarri höfuðborgarsvæðinu. Þetta eru auðvitað rauðglóandi efnahagsleg viðvörunarljós sem koma ofan í loðnubrest og fréttir af hópuppsögnum í síðasta mánuði sem höfðu áhrif á um 450 fjölskyldur. Þessar horfur valda mér verulegum áhyggjum, en það sem veldur mér reyndar enn meiri áhyggjum er að við sitjum hér uppi með ríkisstjórn sem getur ekki einu sinni komið sér saman um hvað þau ætla að fá sér í hádeginu, ekki einu sinni það. Það situr allt pikkfast og það er öllum ljóst. Við verðum að fara að höggva á þessa hnúta og vinna að því að koma böndum á efnahagsmálin. Það þýðir ekki alltaf að koma hingað upp í pontu með einum eða öðrum hætti og segja: Sjáið þið ekki veisluna? Það er engin veisla hjá venjulegu fólki á Íslandi. Lánin hafa stökkbreyst, verðbólgan er að draga úr þeim kjark, það hrannast upp óveðursský í atvinnulífinu. Auðvitað veit hæstv. ráðherra að samdráttur á tímum vaxandi verðbólgu er eitraður efnahagskokteill. Hann veit líka alveg hvað það þýðir að reka ríkissjóð með halla ár eftir ár og hann veit alveg á hverjum það bitnar. Aftur og aftur eru það millitekjuhóparnir, venjulegu heimilin og fjölskyldurnar sem eru látnar taka skellinn. Þannig er það bara.

Þess vegna langar mig til að spyrja hæstv. ráðherra: Hvað ætlar hann að gera til að bregðast við þessari stöðu? Ætlar hann að grípa til einhverra aðgerða? Og hver eru skilaboðin til heimilanna, til venjulegs fólks í landinu?