horfur í efnahagsmálum og hagstjórn.
Virðulegur forseti. Skilaboðin til venjulegs fólks á Íslandi og allra Íslendinga eru alla vega ekki svartnættisyfirlýsingin sem kom úr munni hv. þingmanns. Það er rangt hjá hv. þingmanni, og við getum ítrekað það eins oft og verða vill, að fjármálaáætlun sé að fá falleinkunn hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Ég hitti fulltrúa þess sjóðs og við höfum farið í gegnum þær skýrslur sem þar eru og það er langt því frá.
Og af því að hv. þingmaður hafði orð á því að það ólgaði sérstaklega blóðið í stjórnarliðinu vegna fallandi fylgistalna vil ég geta þess að það er alrangt hvað þann sem hér stendur varðar; hann hefur upplifað ýmislegt á sinni stjórnmálatíð og fer ekki á taugum þó að á móti blási þegar staðan er erfið. Það er há verðbólga, það eru háir stýrivextir og það er staðreynd að fyrir þetta ár, þrjú ár, var hagvöxtur nærri 20% og hann er í engu samræmi við neitt af því sem gerist í fyrirheitna landinu Evrópu, sem hv. þingmaður er stundum að lýsa, því að í sumum löndum þar er samdráttur. Við erum meira og minna í sama takti og Bandaríkin þannig að hér er þensla á markaðnum. Þó svo að minni hagvöxtur sé á Íslandi í ár, að hann stefni í að verða á bilinu 1–2% eftir ólíkum spáaðilum, þá eru það engar katastrófur. En við þurfum að sætta okkur við að væntingar okkar til þess að geta vaxið á þessu ári eru ekki raunhæfar. Stærsta verkefnið er að slá aðeins á væntingarnar, seinka einhverjum framkvæmdum og útgjöldum, bæði hjá heimilum og fyrirtækjum, í því skyni að ná þenslunni niður. En þetta er jafnvægislist.
Það er rétt hjá hv. þingmanni að hér varð loðnubrestur og það er rétt hjá hv. þingmanni að teikn eru á lofti um að ferðaþjónustan vaxi ekki eins og við (Forseti hringir.) vorum að spá og fari jafnvel minnkandi. En akkúrat núna, svo að vitnað sé til orða Seðlabankans, er þetta kannski bara það sem við þurfum að gera til að ná þenslunni niður og koma verðbólgunni í jafnvægi, og þar með ná vaxtastiginu niður.