154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

horfur í efnahagsmálum og hagstjórn.

[10:54]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég veit ekki hversu oft ég þarf að koma hingað upp til að reyna að vekja blessuðu ríkisstjórnina. Það er stundum eins og mér finnist efnahagsstjórnin ganga út á að hún sitji og bíði eftir einhverjum lottóvinningi á meðan hin venjulega fjölskylda á Íslandi verður að takast á við vandann, horfast í augu við hann og forgangsraða til að ná endum saman svo að heimilisbókhaldið gangi upp. Venjulegt fólk fer ekki bara út í búð og kaupir sér lottómiða og vonar það besta en þannig hagar ríkisstjórnin sér núna. Og ef það tekst ekki þá er skuldinni bara skellt á aðra, eins og hæstv. forsætisráðherra gerði um daginn þegar hann vændi fólk sem flúði í verðtryggð lán, til þess að flýja undan oki krónunnar, um að vera að segja sig úr lögum þegar það er einfaldlega að bjarga sér frá lélegri efnahagsstjórn. Ráðherra verður að sjá hversu brýnt það er að hverfa frá þessu agaleysi sem hefur einkennt ríkisfjármál þessarar ríkisstjórnar frá fyrsta degi. Það þýðir ekki lengur að standa bara vörð um innanmein hjá ríkisstjórnarflokkunum, það verður að fara að standa vörð og vaktina fyrir venjulegt fólk í landinu. Það verður að fara að standa vörð og vaktina fyrir heimilin í landinu. (Forseti hringir.) Í guðanna bænum farið og raunveruleikatengið.