154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

horfur í efnahagsmálum og hagstjórn.

[10:55]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég get ímyndað mér að hv. þingmaður ætli að koma hér margoft enn og halda áfram með sömu ræðuna sem hún hefur haldið frá árinu 2017, að ég held, þegar þessi ríkisstjórn tók við, og voru það þó býsna góð ár í landinu. Þá var alltaf málað upp að hér væri allt að fara til helvítis — afsakið, herra forseti — sem er rangt. Við höfum lifað alveg ótrúlega öfluga tíma; kaupmáttur hefur vaxið, atvinnuleysi hefur sjaldan eða aldrei verið minna og í samanburði við önnur lönd er staðan hér býsna góð og horfur mjög vænlegar til næstu ára. En við erum að glíma við þráláta verðbólgu og eina leiðin til að glíma við þráláta verðbólgu er að birta fjármálaáætlun og fjárlög sem eru aðhaldssöm, sem ná markinu sínu hægt og rólega án einhverra kollsteypa, það væri það versta sem við gerðum fyrir heimilin og fyrirtækin. Höldum áfram í þeim takti sem við höfum verið. Þá náum við settu marki.