efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar.
Forseti. Hæstv. forsætisráðherra þessarar ríkisstjórnar er í fullkominni afneitun um stöðu efnahagsmála á Íslandi. Þetta kom skýrt fram í fyrirspurnatíma á dögunum þegar Bjarni Benediktsson sagði, með leyfi forseta, af því að þetta er bein tilvitnun, að Ísland væri í bestu efnahagslegu stöðu í lýðveldissögunni. Ég held satt að segja að fólkinu í landinu svíði svona yfirlýsingar. En hvað segja hagtölurnar okkur? Við erum að sjá heilt ár af vöxtum yfir 9%, fjögur ár af verðbólgu yfir markmiði og nú stefnir í níu ár af hallarekstri ríkisins. Kaupmáttur ráðstöfunartekna hjá heimilum hefur dregist saman á fimm af síðustu sex ársfjórðungum. Ofan á allt saman bætist, eins og rætt var hér rétt í þessu, samdráttur í hagkerfinu, 4% samdráttur á fyrsta ársfjórðungi. Nú má auðvitað vera, og mér heyrðist það reyndar á hæstv. ráðherra hér áðan, að markmiðið sé að búa til lítils háttar samdrátt til að ná tökum á verðbólgunni en þetta virðist ekki ætla að takast því að þrátt fyrir þennan efnahagssamdrátt tikkaði verðbólga upp í síðustu mælingu. Hún fór ekki niður. Þetta er staðan sem ríkisstjórnin hefur komið okkur í, sem fólkið í landinu finnur fyrir þegar það fer út í búð að versla eða þegar það borgar af lánunum sínum. Og þetta er það sem hæstv. forsætisráðherra þessarar ríkisstjórnar kallar bestu efnahagslegu stöðu í lýðveldissögunni. Er eftirmaður hans á stóli fjármála- og efnahagsráðherra jafnánægður með þessa stöðu? Ætlar hæstv. ráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, að halda áfram að reka sömu ónýtu stefnu Sjálfstæðisflokksins í ríkisfjármálum og efnahagsmálum (Forseti hringir.) eða hefur nýi fjármálaráðherrann kjark og styrk til að skipta um kúrs?