efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar.
Virðulegur forseti. Á síðustu árum og núna á síðustu misserum hefur okkur gengið miklu verr að ná niður verðbólgu heldur en í löndunum í kringum okkur. Við erum með einhverja hæstu seðlabankavexti á byggðu bóli. Trúir hæstv. ráðherra því í alvörunni að þessi staða hafi bara ekkert með það að gera að við erum með ríkisstjórn hérna sem ætlar að reka ríkissjóð með halla í níu ár samkvæmt fjármálaáætluninni sem hæstv. ráðherra lagði fram? Og talandi um árin á undan; ríkisstjórn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins tók við góðu búi. Það var búið að ná niður hallanum með erfiðum aðgerðum þegar hæstv. ráðherra settist í ríkisstjórn árið 2013 og við tók uppgangur og ferðamannasprengja. (Forseti hringir.) Síðustu ár hafa einkennst af óstjórn í efnahagsmálum. (Forseti hringir.) Níu ára hallarekstur, einhverjir hæstu seðlabankavextir á byggðu bóli. (Forseti hringir.) Og eigum að tala um húsnæðismarkaðinn, eigum við tala um stöðuna á leigumarkaði? (Forseti hringir.) Tölum aðeins um það hér í seinni atrennu, stöðuna á leigumarkaði. (Forseti hringir.)
Ætlar hæstv. ráðherra að ná í gegn húsaleigulögunum sínum eða ætlar hann að leyfa Sjálfstæðisflokknum enn einu sinni (Forseti hringir.) að stöðva þau á þessu þingi? Getur hæstv. ráðherra (Forseti hringir.) sagt Alþingi hér hvort húsaleigulögin nái í gegn, hvort leigjendur (Forseti hringir.) verði varðir fyrir þessu ástandi?
(Forseti (BÁ): Forseti verður að minna á að ræðutími í síðari ræðu í óundirbúnum fyrirspurnum er 1 mínúta en ekki 1 mínúta og 45 sekúndur.)