efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar.
Virðulegur forseti. Það liggja fjölmörg góð mál fyrir þinginu og ég treysti þinginu og þingmönnum og stjórnarflokkum í samstarfi við stjórnarandstöðu til að vinna úr því og afgreiða sem flest mál sem eru þjóðinni til heilla. Það eru nægilega margir dagar samkvæmt starfsáætlun til þess og það er auðvitað líka hægt að lengja þingið ef til þarf til að ljúka góðum málum.
Ég ætla að ljúka þessu, svo ég geti nú haldið mig innan mínútu hæstv. forseta, með því að segja einfaldlega að það er hægt að þylja hér upp tölur sem eru sannarlega áskorun; háir stýrivextir, há verðbólga og tímabundinn vandi hvað það varðar. Það er líka hægt að fara yfir í aðra hluti og tala um mjög lágt og lægsta atvinnuleysi í stóru samhengi til lengri tíma. Það er líka hægt að tala um kaupmáttaraukningu og að okkur hafi tekist að fara í gegnum þessa faraldra með slíkum hætti. Það er fullt af jákvæðum hlutum sem hægt væri að nefna og það er ekki hægt (Forseti hringir.) að mála hlutina svona einhliða eins og hv. þingmaður gerir. (Gripið fram í.)