fjárhagsleg staða háskólanema.
Forseti. Það er sýn flestra á Íslandi að menntun sé leið til framfara. Þrátt fyrir það leggjum við margs konar hindranir á veg þeirra sem velja að feta þá braut, hindranir sem gera það að verkum að mörg sem útskrifast eru annaðhvort skuldum vafin eða á barmi kulnunar. Hæstv. ráðherra er dugleg að lofa umbótum. Hennar umbætur hafa reyndar alveg verið að koma í svolítinn tíma og ráðherra hefur ítrekað sagt okkur hvers sé að vænta einhvern tímann aðeins seinna. Ráðherra ætlar t.d. að leyfa stúdentum að vinna svolítið meira með námi. Ég veit ekki hvað veldur því að ráðherra telur aðkallandi þörf á að stúdentar vinni meira. 71% íslenskra stúdenta vinna samhliða námi, 72% þeirra sem vinna hefðu annars ekki efni á að stunda nám. Ég sé ekki í fljótu bragði hvaða þörf ráðherra telur sig vera að mæta. Miðað við þær breytingar á sjóðnum sem ráðherra hefur kynnt fyrir okkur hef ég, sem og hagsmunasamtök námsmanna, mjög litla trú á að væntanlegar breytingar muni hafa teljandi áhrif á stöðu námsmanna til hins betra.
Forseti. Háskólanám er samfélag sem á sér fáa líka. Að verja tíma í þessu einstaka samfélagi er ávísun á frjóa hugsun og nýsköpun sem mörg af stærstu fyrirtækjum landsins hafa sprottið upp úr. Það eru því ekki bara stúdentar sem fara á mis við margt ef þeir eru uppteknir við að vinna heldur Ísland allt. Því spyr ég: Hvenær ætlar hæstv. ráðherra að sýna stúdentum þá lágmarksvirðingu að hætta að breyta hlutum í kerfinu sem námsmenn eru ekki að biðja um heldur tryggja þeim viðeigandi framfærslu?
.