fjárhagslega staða háskólanema.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna. Hér er sjónum beint að Menntasjóði námsmanna sem áður var kallaður LÍN. Þau lög sem eru í gildi í dag voru gjörbreyting á kerfinu. Allt síðasta kjörtímabil fór í þá vinnu þegar lagt var upp með nýtt frumvarp þar sem breyta átti kerfinu úr því að vera einungis lánakerfi í það að nálgast norræn kerfi og koma á styrkjafyrirkomulagi. Það tók heilt kjörtímabil að klára slík ný lög. Þau voru síðan kláruð hér í þinginu þar sem allir greiddu atkvæði með þeim nýju lögum. Það er rétt núna að komast reynsla á þessi nýju lög og á grundvelli þeirrar reynslu lét ég vinna skýrslu, eins og Alþingi gerir ráð fyrir að háskólaráðherra geri, með úttekt á því hvernig þessi nýju lög gangi. Það er ljóst af þeirri skýrslu, sem var hér til umfjöllunar í byrjun árs, að reynslan er ekki nógu góð af nýju lögunum. Það er samt líka ljóst að það er ekki hægt að kippa því í liðinn með einfaldri breytingu miðað við þær miklu breytingar sem gerðar voru hér og tóku fjögur ár, sem voru byggðar á grunni vinnu sem unnin var á kjörtímabilinu þar áður.
Það sem ég gerði í upphafi var að hækka grunnframfærsluna um 18%, sem var veruleg hækkun hennar, langt yfir venjubundnar hækkanir. Síðan hækkaði ég frítekjumarkið í úthlutunarreglum þessa árs. Af hverju? Af því að þessi fjöldi nemenda sem hv. þingmaður nefnir er einmitt að vinna með námi og er þá að fá skerðingu á sínum námslánum. Nemendur annars staðar á Norðurlöndum eru ekki að fá jafn miklar skerðingar og eru með frítekjumark sem snertir t.d. ekki störf þeirra í námsfríum, í sumarfríi, jólafríi og páskafríi. Þessi hækkun frítekjumarks nær eingöngu yfir fulla vinnu á þeim stundum sem skólinn er ekki. (Forseti hringir.) Ég vildi skapa það val fyrir nemendur sem vilja vinna og hafa bent á þessar breytingar, (Forseti hringir.) þó að ég viti að það eru aðrar mikilvægar breytingar sem verður að vinna. (Forseti hringir.) Ég skammast mín ekki fyrir að þær séu ekki komnar í þingið enda er það ekki ljóst eftir síðustu breytingar hverjar þær eiga að vera og hvernig við þurfum að breyta kerfi sem greinilega er ekki að virka.