154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

fjárhagslega staða háskólanema.

[11:09]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Hæstv. ráðherra boðar ítrekað breytingar sem enginn er að biðja um og þær taka of langan tíma. Námslán til framfærslu eru 149.000 kr. á mánuði í níu mánuði á ári. Framfærslan er of lág, hana þarf að hækka og til þess þarf aukið fjármagn. Kannski hefur hæstv. ráðherra ekki pólitískt afl til að koma slíkum breytingum í gegn. Hugsanlega telur flokkur ráðherra íslenska stúdenta hina botnlausu hít, hið margumtalaða bákn. Ég spyr því hæstv. ráðherra hve lengi ráðherra treysti sér til að lifa á 149.000 kr. á mánuði í níu mánuði á ári sem deila þarf á 12 mánuði. Það væri svo gott að vita hvort hæstv. ráðherra sæi fyrir sér að framfærslan yrði ráðherra auðveldari, vitandi að umbæturnar væru alveg að koma, mánuðum saman.