154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

fjárhagsleg staða háskólanema.

[11:11]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég geri mér fulla grein fyrir því, og hef sagt það sjálf skýrum orðum hér í pontu þingsins og í umræðu við allsherjar- og menntamálanefnd, að kerfið er ekki viðunandi eins og það er þó að það hafi tekið gjörbreytingum, að grunnframfærslan er enn þá of lág. En þegar við skoðum kerfið í heild sinni þá sjáum við líka að 20% af þeim útgjöldum sem fara í Menntasjóðinn fara í umsýsluna og stofnunina sjálfa. Það hlýtur að vekja upp spurningar um hvort við getum ekki farið betur með fé svo að féð renni raunverulega til þess að styðja nemendur, svo að við nýtum fjármunina í nemendur til að framfærslan verði ásættanleg, vaxtabyrðin ekki jafn þung og hún er í dag og kerfið einfaldara og skilvirkara. Það er verkefnið sem er fram undan. Sú vinna er í gangi. Ég hef ekki lofað þeim umbótum lengi, enda sagði ég alltaf að þingið þyrfti að ræða fyrst skýrsluna og stöðuna á sjóðnum eftir gjörbreytingar á kerfinu til að við myndum átta okkur (Forseti hringir.) á því hverju þyrfti að breyta, hver forgangurinn ætti að vera (Forseti hringir.) og hvaða árangur við vildum sjá (Forseti hringir.) innan þess ramma sem við treystum okkur til að breyta.