154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

Nám í hamfarafræðum á háskólastigi.

[11:30]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Ásmundi Friðrikssyni fyrir að óska eftir sérstakri umræðu um málefni sem er mér mjög nærri, enda hef ég starfað við það síðastliðna tvo áratugi og stundað kennslu víða um heim og skrifað kennslubók í hamfarafræðum. Að vissu leyti má segja að tillaga sú sem hér kemur fram sé nátengd þingsályktunartillögu sem hv. þingmenn Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Þórarinn Ingi Pétursson, Steinunn Þóra Árnadóttir og sá sem hér stendur lögðu fram á síðasta þingi um stofnun alþjóðlegs björgunarskóla hér á landi. Kennsla á þessu sviði fer þegar fram hér á landi. Ýmis námskeið eru í boði á þessu sviði hjá Háskóla Íslands auk þess sem Háskólinn á Bifröst býður upp á grunnnám og meistaranám á sviði áfallahjálpar, en ég hef einmitt kennt námskeið við báða þessa skóla. Það er góð hugmynd að skoða hvort ekki megi bjóða upp á þverfaglegt nám á háskólastigi sem nýtir sér þá þekkingu og reynslu sem finnst hér á landi. Það er skoðandi hvort ekki ætti að hafa það nám undir hatti GRÓ, ekki tengt mér þó að þetta séu upphafsstafirnir mínir, þekkingarmiðstöðvar um þróunarsamvinnu þar sem við erum þegar með þverfaglegt nám í boði, t.d. á sviði jarðvarma og jafnréttis. Aðgerðaleysi iðnríkja þegar kemur að loftslagsvánni og aukinn fjöldi fólks sem býr í borgum auka þann fjölda fólks sem býr við hættu á stórum og alvarlegum hamförum víða um heim. Það er því mikilvægt að við byggjum upp þekkingu, rannsóknir og samstarf á sviði hamfara á heimsvísu. Þar getur Ísland gegnt lykilhlutverki.