Nám í hamfarafræðum á háskólastigi.
Virðulegi forseti. Það er 6. júní og það snjóar, reyndar ekki í höfuðborginni en Norðurland er þakið mjöll. Hér í þessum ræðustól seint í gærkvöldi var verið að ræða breytingar á raforkulögum þar sem m.a. var vitnað til aðventustormsins 2019 þegar rafmagn fór af stórum hluta landsins í töluverðan tíma. Fjögur létu lífið í þessu stormi, í þessum hamförum. Síðastliðinn maímánuður var heitasti maímánuður í sögunni frá því að mælingar eins og við þekkjum þær hófust. Það voru mars og apríl sömuleiðis. En þetta er svo sem ekkert nýtt, svona fregnir berast á hverju einasta ári, oft á ári. Við höfum búið á þessu landi elds og ísa öldum saman og náttúruvá og hamfarir eru okkur nánast í blóð borin. Hér er valinn maður í hverju rúmi þegar kemur að viðbragðsáætlunum, hinum sívinsælu sviðsmyndagerðum og fyrstu viðbrögðum þegar vá steðjar að. Við erum góð í þessu.
Virðulegi forseti. Við megum teljast lánsöm að óbærilegar hitabylgjur hafi ekki enn náð til okkar hér á landi en snjóstormar um sumar, aurskriður um vetur, súrnun sjávar og hraðar breytingar á okkar einstaka vistkerfi er okkar raunveruleiki í dag. Þetta eru afleiðingar loftslagsbreytinga og náttúruvár sem við vitum að mun bara aukast á næstu áratugum. Til þess að bregðast við þessum raunveruleika er nauðsynlegt að halda áfram að byggja upp þá miklu getu og þekkingu sem við höfum á þessu landi. Þverfaglegt meistaranám á háskólastigi í hamfarafræði gæti orðið mikilvæg viðbót við það nám sem þegar er fyrir hendi á háskólastigi í ljósi þeirra alvarlegu afleiðinga sem hinar ýmsu ógnir sem hér hafa verið upp taldar munu hafa á samfélagið.