154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

Nám í hamfarafræðum á háskólastigi.

[11:36]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F):

Virðulegi forseti. Að venju vil ég þakka málshefjanda, hv. þm. Ásmundi Friðrikssyni, fyrir að lyfta upp mjög mikilvægu máli. Það skiptir okkur miklu máli að við séum með sterkan þekkingargrunn á sviði hamfara á Íslandi. Hamfarir eru samofin hlutur okkar daglega lífs og við sem búum á Suðurnesjum, svo ekki sé minnst á vini okkar í Grindavík, höfum svo sannarlega orðið vör við það á undanförnum misserum og er ekkert lát á.

Hv. þingmaður nefnir hér hamfarafræði og það er sannarlega mikilvæg vísindagrein. Það má eiginlega segja að hún taki utan um allt þetta svið sem við erum að glíma við sem samfélag þegar hamfarir skella á. En hamfarir eru því miður ekki bara tengdar náttúrunni heldur geta líka verið manngerðar hamfarir; stríð, hryðjuverk og alls kyns stórslys. Helstu efnistök í hamfarafræðinni eru einmitt skilgreining og flokkun á hamförum, orsökum þeirra og að sjálfsögðu þeim afleiðingum sem hamfarir hafa á samfélög, umhverfi, efnahag og heilsu fólks. Það má því segja að hamfarafræði sé nátengd lýðheilsu þegar það snýr að því, því að í framhaldi af hamförum þurfum við að sjálfsögðu að hlúa vel að þeim sem fyrir þeim verða.

Mig langar aðeins að nefna og taka undir með þeim sem hafa tekið hér til máls að þekkingargrunnur er þegar til staðar á Íslandi. Ég vil sérstaklega benda á að það kann að vera mjög skynsamlegt að efla þann þekkingargrunn með námi á meistarastigi. Hér hefur verið nefnd námsleið við Bifröst, B.A.-nám, og svo eru þeir einnig að kenna áfallastjórnun á meistarstigi. Þannig að grunnurinn er til staðar og ég tek heils hugar undir það að við getum haldið áfram að efla nám í hamfarafræðum.