Nám í hamfarafræðum á háskólastigi.
Virðulegi forseti. Ég tel að hér sé um mikilvægt mál að ræða, eins og ég sagði í fyrri ræðu minni. Ég tel líka mikilvægt að stjórnvöld og ríkisstjórnin taki þetta mál til sín og hafi frumkvæði að því að koma á þverfaglegu námi í hamfarafræðum. Af hverju segi ég það? Ég segi það vegna þess að frumskylda stjórnvalda er öryggi borgaranna. Það er allra mesta frumskylda stjórnvalda að tryggja öryggi borgaranna og helsta ógn Íslands, þ.e. við íslenskt samfélag, eru náttúruhamfarir, náttúruvá. Í skýrslu Tómasar Jóhannessonar um náttúruhamfarir á Íslandi kemur fram að dauðaslys af völdum náttúruhamfara síðustu 100 árin hafi helst verið vegna sjóslysa. Heildarfjöldi þeirra sem fórust á tímabilinu 1901–2000 var yfir 4.000 manns. Ég tel því að þetta tengist að sjálfsögðu líka skipstjórnarnámi og sjómönnum í landinu.
Það er til nám í landinu, eins og hér hefur komið fram, í öryggisfræðum og almannavörnum, alþjóðlegur björgunarskóli á Íslandi og námskeið sem ráðherrann taldi upp í ræðu sinni sem tengjast þessu. Hér þyrfti raunverulega að taka þessi námskeið saman og koma þeim í eitt nám sem væri þá þverfaglegt meistaranám í hamfarafræðum. Ég ítreka þá skoðun mína að ég tel að þetta ætti að vera alþjóðlegt nám vegna þess að Íslendingar hafa mjög miklu miðla, t.d. varðandi hlut sjálfboðaliða í viðbrögðum við náttúruhamförum sem ég tel vera alveg einstakt á Íslandi. Ég þekki ekki til þess að í Skandinavíu t.d. sé svipað sjálfboðaliðastarf til að bregðast við hamförum. Þetta er gríðarlega mikilvæg stoð í samfélaginu, að virkja samfélagið með þeim hætti að sjálfboðaliðar taki þátt í viðbragði við náttúruhamförum. Svo er það líka það að við erum staðsett þannig á hnettinum, einangruð eyja í Norður-Atlantshafi, þar sem veður eru válynd við hafið og við erum (Forseti hringir.) hérna á flekaskilum þar sem eru jarðhræringar og hafa verið áratugum saman.
Ég hvet (Forseti hringir.) hæstv. ráðherra eindregið til að taka þessari áskorun málshefjanda (Forseti hringir.) og fara að skoða málið með góðum hætti og þá jafnvel að það yrði alþjóðlegur skóli (Forseti hringir.) á sviði náttúruhamfara.
(Forseti (OH): Enn vill forseti biðja hv. þingmann að gæta að ræðutímanum.)