Nám í hamfarafræðum á háskólastigi.
Virðulegi forseti. Áhrif náttúruhamfara og hvers kyns hamfara raunar geta verið gífurlega þungbær og langvarandi, bæði fyrir einstaklinga og sömuleiðis heilu samfélögin. Við þurfum ekki að líta langt til þess að sjá skýr dæmi um slíkt, annað beinlínis ljóslifandi. Áttunda eldgosið í kjölfar jarðskjálfta á Reykjanesskaganum á nokkurra ára tímabili stendur nú yfir. Grindavík er í sárum. Hitt nýlega dæmið upplifðum við í aðdraganda jólahátíðarinnar árið 2020 þegar stærðarinnar skriða féll á Seyðisfirði. Hamfarir hafa áhrif á einstaklinga og samfélög, ekki bara byggingar, vatnsveitur, híbýli, skóla, sjúkrahús, rafveitukerfi, lagnir, vegi heldur líka börn, foreldra, nemendur, kennara, innflytjendur, verslunareigendur, rekstraraðila, starfsfólk, nágranna í nærsveitarfélögum og nærliggjandi byggðum. Í stuttu máli, virðulegi forseti, fólk. Fólk er mikilvægasti hluti hvers samfélags. Því er mikilvægt að nám í hamfarafræðum sé þverfaglegt og í raun eins þverfaglegt og hægt er. Þar þurfa að koma saman heilbrigðisvísindi, sálgæsla, jarðvísindi, veðurfræði, skipulagsfræði, uppeldis- og kennslufræði, mannfræði og önnur félagsvísindi og svo mætti lengi telja. Gæta þarf að jöfnuði og kynjasjónarmiðum. Það þarf að vera geta til að halda utan um samfélag og einstaklingana sem skapa það. Öll þurfa að fá viðeigandi aðhlynningu og hjálp óháð aldri, stöðu, kyni og ekki síst uppruna þegar hamfarir dynja og í kjölfar þeirra. Skilningur á þessu er að aukast sem betur fer og það er fagnaðarefni, virðulegi forseti, ef tekst að taka utan um þetta af myndugleik í námsframboði hérlendis.