Nám í hamfarafræðum á háskólastigi.
Virðulegi forseti. Ég vil í byrjun ítreka það sem ég fór yfir hér áðan. Við eigum að huga að þeirri þekkingu sem nábýlið við náttúruöflin færir okkur. Hvernig getum við byggt upp þessi fræði á háskólastigi og miðlað þannig af reynslu okkar út fyrir landsteinana? En af því að ég minntist á Háskólann á Bifröst í fyrri ræðu minni þá vil ég líka nefna þátt Háskólaseturs Vestfjarða í þessu sambandi. Þar hefur um árabil, í samstarfi við Háskólann á Akureyri, verið boðið upp á þverfaglegt meistaranám sem m.a. byggist á því að nýta reynslu okkar og þekkingu af því að búa á þessari eyju í Norður-Atlantshafi og greina í þessum veruleika bæði áskoranir og tækifæri. Þetta þarf allt að kortleggja og skoða, þá aðallega með tilliti til þess sem fyrir er áður en hafist er handa við að smíða allt frá grunni. En eins og hv. þingmaður bendir á er málið á algjöru frumstigi og þarfnast frekari greiningar og yfirlegu.
Svona að síðustu, eins og hv. þingmaður þekkir, þá hafa þessir atburðir í og við Grindavík verið okkur sem búum á Reykjanesi mikil og þörf áminning. Við búum í landi eldsumbrota og jarðhræringa, við búum líka í landi ofanflóða og í raun má segja að við búum við velflest þau náttúrulegu fyrirbæri sem geta haft varanleg áhrif á fólk og samfélög. Á þetta erum við minnt með reglulegum hætti og um land allt. Þennan veruleika eigum við að hafa miklu oftar í forgrunni, bæði til að vera betur undirbúin en líka til þess að skoða hvernig við getum nýtt þennan veruleika til að búa til þekkingu sem nýst getur ekki bara okkur sjálfum heldur víða um heim.