frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Frú forseti. Hér ræðum við tillögu um að innleiða hitt púslið á móti persónuverndarreglugerð Evrópusambandsins, reglugerð um frjálst flæði ópersónugreinanlegra upplýsinga, mikilvægt stykki til að Ísland geti tekið virkan þátt í stafrænum innri markaði Evrópusambandsins. Það er ekkert smámál. Frá því að þessi tilskipun var samþykkt í Brussel hefur gagnamagn sem er framleitt á ári á að giska fimmfaldast. Það er skotið á að stafræna hagkerfið eða gagnahagkerfið standi undir einhvers staðar á milli 2% og 6% af landsframleiðslu innan Evrópusambandsins. Þar á Ísland að vera fremst í flokki. Þar eigum við að vera virkir þátttakendur og metnaðarfull. Við þurfum hins vegar að móta okkur stefnu hér heima fyrir. Það þarf skýra og metnaðarfulla gagnastefnu fyrir Ísland. Helst þyrfti, eins og er í flottustu ríkjunum, að vera með sérstakan gagnastjóra sem sér til þess að þessi mikilvægi málaflokkur detti ekki á milli sílóanna í stjórnsýslunni, eins og allt of oft vill verða. Þannig að hér erum við að stíga skref fram á við (Forseti hringir.) í þágu þekkingarsamfélagsins. (Forseti hringir.) Mig langar kannski bara að lokum að þakka fyrir þá góðu umræðu sem við áttum um þetta mikilvæga (Forseti hringir.) framtíðarhagsmunamál, þótt ég hafi saknað stjórnarliða, (Forseti hringir.) sem eru auðvitað meira að horfa til fortíðar, greyin.