frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Frú forseti. Ég vildi bara koma hingað upp og þakka fyrir virkilega líflegar, skemmtilegar og fræðandi umræður um þetta mikilvæga mál, sem ég ætla að gefa mér að 98% hv. þingmanna hafi ekki haft hugmynd um hvað var áður en þessi umræða hófst. Það er mikilvægt að við höfum góðan skilning á því hvað við erum í rauninni að samþykkja, sérstaklega þegar það kemur bara sem tilskipun frá Evrópusambandinu, að það fari ekki bara hér hratt í gegn og enginn viti hvað var verið að samþykkja, heldur sé þingheimur upplýstur um það hvað er í rauninni bak við það þegar við ýtum á takkann hér á eftir. Mig langar bara að þakka öllum sem tóku þátt í þessari góðu umræðu og ég vona að það verði enn þá fleiri við næstu mál.