frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (um atkvæðagreiðslu):
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. nefnd fyrir að fjalla um málið og klára það með þessum hætti. Það er örugglega rétt hjá hv. þingmönnum sem hér hafa komið upp; málið lætur ekki mikið yfir sér en það skiptir gríðarlega miklu máli þegar við vinnum að stafrænum lausnum og tökum þátt í þeim markaði í Evrópu. Að birta fleiri gögn er líka forsenda aðgerða varðandi gervigreind og árangur í gervigreind, bæði að búa til verðmæti, finna lausnir sem og að ná árangri í að nýta gervigreind í þágu samfélagslegra áskorana, þannig að ég er mjög ánægð með að við séum að klára þetta mál hér. Yfirstandandi er vinna um stefnu um opin gögn, sem skiptir ekki síður máli, eins og hv. þm. Andrés Ingi Jónsson kom inn á. Og það skiptir gríðarlega miklu máli að þessi mál detti ekki niður heldur sé þeim haldið vel til haga svo að við getum náð auknum árangri og staðið enn framar í stafrænni þróun og gervigreind (Forseti hringir.) sem Ísland hefur alla burði til að vera meðal fremstu landa í. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)