frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Forseti. Ég vil taka undir með þeim sem hér hafa talað. Þetta mál er stærra en það kannski virðist vera við fyrstu sýn. Ég vil þakka öllum þeim sem tóku þátt í þessari umræðu með okkur hérna í gær og fyrradag. Það sem gerist þegar við ræðum mál — það má vera að fólk upplifi oft þessi innleiðingarmál sem eitthvað sem engin ástæða sé til að ræða og við leyfum bara að fljóta í gegn, sérstaklega þegar þau eru góð eins og þetta mál er. En í umræðunni kemur auðvitað á daginn að það er ýmislegt sem okkur er fært að skoða og skiptir máli að skoða. Það eru til ýmsar leiðir við að innleiða Evrópureglur og ég treysti hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni til að fara yfir þær athugasemdir sem hann hefur við þá aðferð sem hér var valin. En engu að síður vil ég fagna þessu. Þetta er mikilvægt mál og spilar saman við aðrar reglur sem hafa verið settar á þessum vettvangi. Ég held að þetta sé jákvætt skref fram á við akkúrat til þess að við séum að fjarlægja hindranir fyrir nýsköpun og þróun í þessum málum í Evrópu og í heiminum öllum.