frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmönnum sem tóku þátt í þessari mikilvægu umræðu um þetta mikilvæga mál. Af hverju segi ég að þetta sé mikilvægt mál? Vegna þess að þetta er eitt af grundvallarfrumvörpum sem lúta að gagnahagkerfinu. Ef við ætlum að taka þátt í gagnahagkerfinu, sem er framtíðarhagkerfi í vestrænum ríkjum, þá verðum við að standa vel að löggjöf hvað það varðar. Ég vek athygli á því að það voru engar umsagnir sem komu um þetta frumvarp, engar. Kynningin á málinu hefur ekki verið nægjanleg. Ég geri athugasemd við það að við beitum þar tilvísunaraðferðinni við innleiðingu á ESB-reglugerð. Einnig geri ég athugasemdir við það að þýðingin úr reglugerð til frumvarps er bara röng að mörgu leyti. Það er talað um staðbindingu í reglugerð, það verður staðsetning í frumvarpi. Það er talað um ópersónulegar upplýsingar í reglugerð, það verða ópersónugreinanleg gögn í frumvarpi. Svona vinnubrögð eiga ekki að sjást. Við eigum að sjálfsögðu að byggja á reglugerðinni og þýðingunni sem þar er en ekki vera að finna upp ný hugtök sem eru ekki nákvæmlega í samræmi við það sem stendur í reglugerðinni. Þetta mun leiða til misræmis og ég er sannfærður um að þetta frumvarp mun koma aftur til okkar í betri mynd, (Forseti hringir.) ekki með tilvísunaraðferðinni.