frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Frú forseti. Þetta er náttúrlega algjörlega stórkostlegt mál og ég vil byrja á því að þakka öllum hjartanlega fyrir að hafa upplýst mig um hvað málið snýst. Það er ósjaldan sem við höfum verið á gulu í innleiðingarreglugerðum í sambandi við samstarfið okkar á Evrópska efnahagssvæðinu varðandi EES-samninginn og það er einfaldlega út af því að við höfum ekki haft hugmynd um hvað við erum að greiða atkvæði um. En núna loksins þá hafa gersamlega öll ljós kviknað og ég átta mig á því að þetta er gjörsamlega beintengt við EES-samninginn. Þetta er til þess að jafna vægi okkar á innri markaðnum. Þetta er til þess að ekkert ríki sem er í samstarfinu geti haft hærri þröskuld þegar kemur að hindrunarlausu flæði á ópersónugreinanlegum upplýsingum milli aðildarríkjanna, að meðalhófs sé gætt. Ég á ekki orð yfir það hvað ég var orðin klár í þessu máli og ég skal sko vera græn með glöðu geði. [Hlátur í þingsal.]