innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.
Frú forseti. Hér er annað innleiðingarmál sem fékk góða umræðu, sem er mikilvægt vegna þess að eins og ég og hv. framsögumaður í þessu máli ræddum hér í hliðarsölum í gær þá vissu eflaust fæstir um hvað dreifð færsluskrártækni væri yfir höfuð, en við lærðum það hér í gær að hún er undirstaða t.d. allra rafmynta en er líka hægt að nota sem tækni til að einfalda marga fjármálagerninga. Það skiptir máli að innleiða þetta vegna þess að þetta er tilraunareglugerð frá Evrópusambandinu sem gerir það kleift að nýsköpunarfyrirtæki á Íslandi, sem eru að vinna með þessa tækni, geta núna staðið á jafnréttisgrundvelli gagnvart öðrum Evrópusambandsríkjum þegar kemur að því að þróa lausnir sem byggja á þessari nýju og góðu tækni.