154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[12:07]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Þetta er annað mikilvægt mál. Hér er innleiðing með hinni svokölluðu tilvísunaraðferð, sem ég veit að hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni hugnast betur en sú aðferð sem var notuð við innleiðingu málsins sem við ræddum hér á undan. Þetta er gríðarlega mikilvægt mál og snýst um að gera okkur samkeppnishæf á alþjóðavettvangi. Dreifð færsluskrártækni er kannski ekki öllum kunnug nema einmitt sem grundvöllur t.d. rafmynta sem notaðar eru. Það er tækni sem gengur út á það að upplýsingar færist örugglega og óbreytanlegar á milli aðila þegar enginn miðlægur aðili hefur stjórn á upplýsingunum. Þetta nýtist okkur t.d. Í þessu frumvarpi erum við að tala um fjármálagerninga en nú þegar nýtist þessi tækni okkur t.d. í rafmyntum. Sömuleiðis gæti hún nýst okkur á öðrum vettvangi, t.d. við stjórn fiskveiðiheimilda þegar við erum með mörg ríki í samstarfi þar sem það er ekki eitthvert eitt ríki sem á að stýra þeim málum. (Forseti hringir.) Þá nýtist þessi tækni til að tryggja það (Forseti hringir.) þegar engin miðlæg stjórn er að upplýsingum sé ekki breytt þegar þær fara á milli aðila. Þetta er gríðarlega mikilvæg tækni. (Forseti hringir.) Hún nýtist okkur ákaflega vel á mörgum sviðum. Hér er verið að leggja til að fella brott (Forseti hringir.) hindranir við að hún sé notuð til fjármálagerninga. Ég fagna þessu máli.

(Forseti (OH): Forseti minnir á að þegar hv. þingmenn tala um atkvæðagreiðslu þá hafa þeir aðeins eina mínútu til þess.)