154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[12:09]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Það er mikilvægt að innleiða regluverk til þess að nýsköpun á sviði dreifðrar færsluskrártækni geti átt sér stað hér á landi. Það er áhugavert að Evrópusambandið sé nógu mikill flippkisi til að vera með tilraunaregluverk þannig að þetta verður prufukeyrt núna til ársins 2026 og svo verður árangurinn metinn og í framhaldinu ákveðið hvernig varanlega regluverkið verður.

Ég má hins vegar til með að nefna atriði sem við ræddum hér í þeirri góðu umræðu sem átti sér stað í gær varðandi vítin sem þarf að varast, vegna þess að það er mikill vilji til þess að koma böndum á misnotkun rafmynta í þágu glæpa og hryðjuverkasamtaka og alls konar slúbberta. Það má hins vegar ekki vera á kostnað t.d. mannréttindafrömuða sem þurfa að nota óhefðbundið fjármálakerfi til að geta lifað af, til að geta fengið fjárhagslegan stuðning til að berjast gegn alræðisstjórnvöldum í heimalandinu sínu. Rafmyntir hafa reynst (Forseti hringir.) gríðarmikilvæg líflína fyrir slíka hópa, ég nefni t.d. stjórnarandstöðuna í Belarús. Við megum ekki (Forseti hringir.) láta baráttuna gegn glæpasamtökum, sem mun ekki endilega einu sinni (Forseti hringir.) skila árangri ef við beislum rafmyntirnar, (Forseti hringir.) koma niður á hópum (Forseti hringir.) sem við verðum að standa vörð um.