154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[12:10]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Það er eins og með alla nýja tækni að það eru ákveðnar áskoranir sem liggja þar á bak við í þeim breytingum sem slík tækni býður upp á. Með þessa blessuðu tækni sem er á bak við rafmyntina þá hefur verið leitun að tilgangi fyrir tækni, aðra en einmitt þessa dreifðu færsluskrá með öllum kostum og göllum sem rafmyntirnar hafa boðið upp á. En ég held að það sé tækifæri núna til að nota þessa tækni einmitt til þess að votta og upprunavotta efni vegna tilkomu gervigreindarinnar, þ.e. að óbreytt myndbönd og þess háttar séu vottuð í gegnum þessa tækni þannig að það sé aðgengilegt bara út um allt hvað er t.d. rétt upprunalegt myndband og hvað er það ekki. Það gæti verið mjög mikið gæfuskref að ná þessum (Forseti hringir.) markmiðum sem eru sett hérna fram í baráttunni við falsfréttir.