154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[12:13]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Hér er um mjög mikilvægt mál að ræða sem lýtur að upplýsingatæknibyltingunni. Ég tel, svo að það komi fram, að tilvísunaraðferðin eigi að vissu leyti rétt á sér hér að hluta. En ég hefði talið æskilegt að reglugerðin sjálf væri fylgiskjal með frumvarpinu, með lögunum.

Hvað er dreifð færsluskrá? Sagan segir okkur að það hafi verið — sumir vilja meina að þetta sé frá Rómverjunum, aðrir segja frá Býsans en í nútímaskilningi er þetta sennilega frá bandaríska hernum. Þeir höfðu njósnastöðvar á mörgum stöðum og ef ein var sprengd upp þá voru sömu gögn í hinum stöðvunum líka. Þessi tækni er að sjálfsögðu nýtt varðandi rafmyntir en það má nota hana mjög víða, t.d. í bifreiðaskrá. Við þurfum nú að fara upp í Samgöngustofu og breyta skráningu á bifreið okkar við kaup. Það má líka nota þessa tækni í fasteignaskrá, hlutafélagaskrá og öðrum skrám. Ég skora á hæstv. ríkisstjórn að hefja undirbúning á því að skoða það hvort það væri ekki rétt að setja bifreiðaskrá í dreifða færsluskrá. Það myndi þýða það að um leið og við borguðum fyrir bifreiðina þá myndi eignarhaldið færast á kaupanda. (Forseti hringir.) Þetta myndi gera það óþarft að opinber aðili, (Forseti hringir.) svokallaður „trusted third party“, þyrfti að sjá um skráningu á þessum bifreiðum.