154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[12:15]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Mig langaði aðeins að kveikja áhuga hv. þingmanna hér inni á því að við höfum dálítið verið að tala hér um upprunavottorð matvæla í þinginu í vetur. Mig langaði að segja ykkur frá því að nákvæmlega þessi tækni hefur einmitt verið notuð til þess að tryggja upprunavottun. Þar er það gert þannig að hver einasti liður, þ.e. allt frá framleiðanda til búðar, er skráður inn í þessa dreifðu færsluskrá. Þannig er tryggt að hægt sé að rekja hvaðan þessi matvæli, í þessu tilfelli, komu, allt frá því hver bóndinn var sem ræktaði þetta land yfir í það hver slátraði, hver tók við vörunni, hver keypti og jafnvel er hægt að sjá hver kostnaðurinn var á hverju stigi. Þetta hefur þegar verið notað, t.d. til að tryggja upprunavottun kaffis í Suður-Ameríku.