raforkulög.
Frú forseti. Við ræðum hér frumvarp sem er ætlað að skjóta sterkari stoðum undir skömmtun á raforku þegar slíkra aðgerða er þörf og marka skömmtun ákveðna umgjörð. Í 9. gr. raforkulaga kemur fram að ef ófyrirséð og óviðráðanleg atvik valda því að framboð raforku fullnægir ekki eftirspurn beri flutningsfyrirtæki, þ.e. Landsneti, að grípa til skömmtunar til dreifiveitna og notenda. Í ákvæðinu segir að við skömmtum skuli gæta jafnræðis, byggja á málefnalegum sjónarmiðum sem nánar skuli útfærð í reglugerð. Slíkar reglugerðir hafa verið settar. Það eru í gildi reglugerðir og skilmálar sem taka á skerðingum og skömmtunum, samanber skilmála um skerðingar á skömmtun rafmagns, C5, sem er þessi svokallaður netmáli sem veitir Landsneti heimildir til að mæta umframeftirspurn með nýtingu reglunarafls, skerðingum á ótryggðu rafmagni og skerðanlegum flutningi og nýtingu skerðingarheimilda hjá stórnotendum, framleiðslu með varaafli, hámörkun framleiðslu hjá vinnslufyrirtækjum og loks skömmtun.
Ég held að það sé sannarlega mikilvægt að það sé skilgreint betur í lögum hvaða viðmið eru lögð til grundvallar, að þetta sé niðurneglt í settum lögum en ekki bara í reglugerð og að það sé þá kveðið á um að almennir notendur njóti forgangs, að heimili, mikilvægir samfélagsinnviðir og lítil og meðalstór fyrirtæki séu í forgangi í þessum undantekningartilvikum þegar gripið er til skömmtunar. Sú leið sem er lögð til í frumvarpinu og sú einföldun sem er lögð til í nefndaráliti og í breytingartillögum meiri hlutans er af hinu góða, að ég held.
Við skulum halda því mjög kirfilega til haga hvað aðstæður okkar eru sérstakar hérna á Íslandi í orkumálum. Við erum með lokað kerfi. Við getum ekki flutt inn raforku frá næstu nágrannalöndum eins og er gert á meginlandi Evrópu. Við erum ekki með sömu möguleika þegar kemur að varaorkukostum. Við getum ekki bara gripið til gass og kolaorkuvera eins og er gert þar. Og svo er það auðvitað þessi séríslenska staða að við erum alveg ofboðslega háð náttúruöflunum. Það eru þau sem í raun ráða orkuvinnslugetunni að verulegu leyti á hverjum tíma, það hvort það eru góð eða slæm vatnsár, hver staðan er í miðlunarlónum o.s.frv. Og svo eru það auðvitað áhætturnar tengdar náttúruhamförum. Allt þetta kallar á að hugað sé alveg sérstaklega að raforkuöryggi og að við séum með belti og axlabönd vegna þess að það geta komið upp alveg gríðarlega erfiðar og alvarlegar aðstæður þegar það ríkir ójafnvægi á orkumarkaði, t.d. þegar fyrirtæki hafa skuldbundið sig ótæpilega gagnvart stórnotendum. Það fór fram mikil og hörð umræða um þetta núna í kringum síðustu áramót þar sem forstjórar orkufyrirtækjanna tókust á í blöðunum, skrifuðu harðorðar greinar hver á fætur öðrum og tókust á um það hverjum væri um að kenna, hvort fyrirtæki hefðu ofselt orku til stórnotenda, skuldbundið sig um of og ef svo væri hvaða fyrirtækjum væri þá helst um að kenna o.s.frv. Þá var einnig tekist á um það í þingsal hvort og þá hvaða skyldur ætti að leggja á vinnslufyrirtæki, hvernig byrðin ætti að dreifast þegar kemur að því að tryggja forgangsorku og hvort það ætti að miða við hlutdeild í framleiðslu, hlutdeild á heildsölumarkaði. Það voru ýmsar spurningar sem vöknuðu. Það frumvarp endaði svo ofan í skúffu, enda fól það í sér bráðabirgðaaðgerðir sem voru svo metnar sem svo að væri ekki jafn knýjandi þörf á lengur eftir að staðan í miðlunarlónum batnaði aðeins og markaðurinn brást líka að einhverju leyti við í umræðunni.
Þetta frumvarp sem við erum að ræða hér snýst um annars vegar hlutverk Orkustofnunar sem eftirlits- og greiningaraðila og um hlutverk Landsnets og dreifiveitna þegar þessar óviðráðanlegu aðstæður koma upp. Ég held að þessi leið sem er farin í frumvarpinu og er í samræmi við tillögur starfshóps og nokkuð breið sátt hefur verið um sé besta mál.
Ég er að sama skapi sammála mörgu af því sem kemur fram í áliti meiri hluta atvinnuveganefndar. Það sem er kannski markverðast þar og helsta breytingin sem nú er lögð til við þinglega meðferð málsins og birtist sem breytingartillaga í þessu nefndaráliti meiri hlutans snýr að því að gera stórnotendum, ekki síst álverunum, kleift að endurselja orku inn á orkukerfið, þ.e. inn á jöfnunarorkumarkað Landsnets. Þetta áttum við hv. þm. Óli Björn Kárason ágætisorðaskipti um hér í gær þegar hann mælti fyrir nefndaráliti meiri hlutans. Eins og kannski flestir þekkja þá er þetta auðvitað eitt af hlutverkum Landsnets, að stilla saman raforkuvinnsluna eins og hún er á hverjum tíma og raforkuþörfina, mæta þessum frávikum sem verða milli kaupa sem samið hefur verið um og svo raforkunotkun eins og hún birtist í rauntíma. Þetta er gert með samningum við framleiðendur orku skv. 4. mgr. 9. gr. raforkulaga. Þetta er það sem er ýmist kallað jöfnunarorkumarkaður eða reglunaraflsmarkaður. Eftir því sem ég best veit þá hefur hingað til aðeins verið verslað við vinnslufyrirtækin í þessu sambandi. Það er a.m.k. það sem gildandi lög gera ráð fyrir. Hér spilar auðvitað inn í að þegar samið hefur verið við stórnotendur, og þá sérstaklega af hálfu Landsvirkjunar, þá er það venjulega þannig að endursala á umframorku er takmörkuð, sérstaklega í samningum. Það eru gerðir þar samningar sem kallaðir eru á ensku „take and pay“-samningar og þannig ákvæði eru í öllum þessum eldri orkusamningum Landsvirkjunar við stóriðjuna. HS orka hefur reyndar verið að setja inn heimildir í sína samninga til endursölu við ákveðnar kringumstæður.
Svo hefur það líka gerst að Landsvirkjun hefur slakað á þessum kröfum vegna ástandsins sem hefur verið upp í miðlunarlónum. Þannig gerðist það núna 2022 að Landsvirkjun falaðist eftir viðræðum við stórnotendur um endurkaup á raforku. Þá kom það hins vegar í ljós að fyrirtækin gerðu kröfu um margfalt samningsverð. Landsvirkjun gerði þetta svo aftur núna í upphafi þessa árs, leitaðist eftir samningum, en það var enginn áhugi hjá stórnotendum, kannski líka vegna þess að álverð er hátt og fórnarkostnaðurinn er meiri en nemur ábatanum af svona viðskiptum þannig að það varð ekkert af þeim. Það sem Landsvirkjun gerði þá var að í rauninni taka bannákvæðin úr sambandi tímabundið, það var gert til loka apríl, þannig að stórnotendum var í rauninni heimilað tímabundið að selja inn á kerfið.
Í minnisblaði Orkustofnunar til atvinnuveganefndar frá 27. febrúar síðastliðnum segir um þetta allt saman, með leyfi forseta:
„Ólíklegt verður að teljast að þetta skili mikilli orku inn á kerfið í vor í ljósi áhugaleysis stórnotenda sem skýrist væntanlega af háu verði á áli og þeim samningum sem stórnotendur eru bundnir af varðandi afhendingu sinna afurða. Landsvirkjun hefur þó stigið skref í þá átt að fjarlægja samningshindranir svo hægt sé að selja orku til baka inn á markaðinn. Hafa ber í huga að aðeins eitt fyrirtæki af þessum er með raforkusöluleyfi og það er því eingöngu það fyrirtæki sem getur selt sína raforku annað en til síns sölufyrirtækis. Hin geta þó selt í gegnum Landsvirkjun og hefur einn viðskiptavinur nýtt sér umræddan möguleika og boðist til þess að draga úr notkun upp á 12 GWst á 2 mánaða tímabili. Umrædd orka er seld til sölufyrirtækis í sama landshluta og þarf Landsvirkjun í því tilviki að hafa milligöngu um söluna þar sem viðkomandi stórnotandi hefur ekki raforkusöluleyfi og er í jöfnunarhring Landsvirkjunar. Að auki þarf Landsvirkjun að jafna álagið til þess að það henti heildsöluviðskiptavininum.“
Í sama minnisblaði frá Orkustofnun kemur fram að endurkaup orku séu síðasta og dýrasta úrræði Landsvirkjunar til að verjast lágri stöðu miðlunarforðans. Og þetta skiptir máli. Þetta er síðasta og dýrasta úrræðið hjá Landsvirkjun. Frumvarpið hér snýst ekki um kaup Landsvirkjunar á umframorku, það snýst um jöfnunarorkumarkaðinn hjá Landsneti. En það sem truflar mann er að það virðist ekkert áhrifamat hafa farið fram á þessari breytingu. Og ef þetta er svona þegar Landsvirkjun leitaðist eftir að kaupa orku af stórnotendum vegna slæmrar stöðu miðlunarlóna, af hverju ætti það að vera eitthvað öðruvísi þegar Landsnet gerir það? Af hverju ættu þeir að bjóða eitthvað betra verð þá?
Höfum líka í huga hér að breytingin sem stjórnarmeirihlutinn leggur til er á ákvæði sem fjallar um þau skref sem Landsnet þarf að taka áður en gripið til skömmtunar af einhverju tagi. Þannig að það er ekki þannig að Landsnet muni bara hafa algjört sjálfdæmi um það einhvern veginn hvort þessi heimild sé nýtt eða ekki. Þetta er skref sem verður, að því er ég fæ best skilið, að taka áður en gripið er til skömmtunar, þ.e. skömmtunar til að koma almennum notendum í var, heimilum og fyrirtækjum sem eru ekki stórnotendur. Þegar Landsvirkjun reyndi þetta þá bauðst orkan aðeins á margföldu heildsöluverði Landsvirkjunar, eða 250–300 dollurum á megavattstund. Þessi verðlagning byggði ýmist á áætluðu framlegðartapi í þeirra framleiðslu eða á kostnaði við keyrslu á varaafli. Ég sé ekki hvers vegna sala álvera, stóriðjunnar, til Landsnets ætti að lúta einhverjum öðrum lögmálum.
Eins og ég segi, þetta er skref sem Landsnet verður að taka áður en kemur til skömmtunar. Þetta er frekar flókið allt saman og ég ætla bara að viðurkenna vanmátt minn, ég leikmaður er ekki sérfræðingur í orkumálum, maður er bara að gera sitt besta, setja sig inn í þær umsagnir sem berast og tala við sérfróða. Ég velti því fyrir mér og ég hef áhyggjur af því að þær breytingar sem hér er verið að ræða að leggja til þýði að undir einhverjum ákveðnum kringumstæðum geti komið upp sú staða að í stað þess að gripið sé til tímabundinnar skömmtunar þar sem forgangur heimila, forgangur grunnþjónustu, grunninnviða, félagslegra innviða o.s.frv., heilbrigðisþjónustu og annars og smærri og meðalstórra fyrirtækja er tryggður, komi einfaldlega í staðinn upp sú staða að Landsnet þurfi að kaupa jöfnunarorku á uppsprengdu verði frá álverum. Þetta er það sem ég hef áhyggjur af og að þetta háa verð verði með tilheyrandi verðhækkunum fyrir almenna notendur fyrir heimilin í landinu.
Svona atriði, það hvort frumvarpið geti haft þessi áhrif með þessum breytingum, þarf auðvitað að koma mjög skýrt fram. Þess vegna hefði þurft áhrifamat á þessari breytingu, skothelt mat á því hvaða afleiðingar þetta kann að hafa á orkumarkaðinn og ekkert slíkt er að finna í breytingartillögum meiri hlutans. Og athugið, þetta er auðvitað frumvarp sem var búið að koma frá ráðuneytinu og fá ákveðna umfjöllun í atvinnuveganefnd þar sem umsagnaraðilar voru kallaðir að borðinu. En eins og gerðist í umdeildu máli hérna fyrir nokkrum mánuðum þá verða ákveðnar grundvallarbreytingar í meðförum nefndarinnar og af því að ég mun kalla eftir að þetta mál fari aftur til nefndarinnar fái annan umsagnahring í ljósi þessarar breytingar ætla ég rétt að vona að orðið verði við því af því að við eigum ekkert að vera að leika okkur að því að hleypa stóriðjunni inn á jöfnunarorkumarkað raforku án þess að við vitum nákvæmlega hvaða afleiðingar það hefur og án þess að það sé einhver umgjörð um það. Það er ekki mælt fyrir um neina slíka umgjörð, það er ekkert verðþak, það er ekkert þak á magni, það eru engir varnaglar. Það getur vel verið að þetta sé skynsamlegt en þá þarf að rökstyðja það almennilega. Það þarf að gera einhverja lágmarkstilraun til að greina það hvaða áhrif þetta kann að hafa.
Ég átti í orðaskiptum við hv. þm. Óla Björn Kárason um þetta mál í gær. Ég spurði hv. þingmann hvaða áhrifamat hefði farið fram, því að ekki fór það fram á vettvangi nefndarinnar, ekki liggja fyrir minnisblöð frá t.d. Landsneti eða Orkustofnun eða öðrum um það hvaða áhrif þetta nákvæmlega muni hafa. Það var nú fátt um svör. Hv. þingmaður benti bara á að í rauninni væri aldrei hægt að spá fyrir um það af neinni nákvæmni, sem er alveg rétt, hvernig verð þróast á markaði. En þetta skiptir máli af því að þetta er ekki eins og hver annar markaður. Við erum að tala um algjöra grunnþörf fólks, algjört grundvallaratriði til að heimili hafi í sig og á og svo að fyrirtækjarekstur, atvinnustarfsemi fái þrifist. Þannig að það er ekki hægt að leika sér að svona breytingum sem við vitum í raun ósköp lítið hvaða áhrif hafa á orkuverð.
Ég vona að sú umræða sem nú er fram undan — og ég held að það væri við hæfi að þingheimur tæki sér dágóðan tíma í að fjalla um þetta mál. Ég vona að stjórnarliðar taki líka þátt í umræðunni og reyni þá að útskýra og rökstyðja þessar breytingar. Ég vona að þessi umræða muni varpa einhverju lágmarksljósi á það hvað þetta þýðir allt saman, hvaða afleiðingar þetta hefur. Ég held að ég haldi áfram umfjöllun um þetta og skoði fleiri vinkla sem ég tel mikilvægt að velta upp í annarri ræðu. Ég ætla að segja þetta gott í bili og bið hæstv. forseta um að setja mig aftur á mælendaskrá.