raforkulög.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þetta innlegg og einnig fyrir að hafa vakið máls á þessum þætti málsins í gær. Aðeins áður en ég tala um fjarvarmaveiturnar þá langar mig að koma inn á það sem hv. þingmaður nefndi í upphafi, sem er þessi sérstaka staða á Íslandi vegna endurnýjanlegra orkugjafa þar sem við erum gríðarlega háð náttúruöflunum um orkuvinnslugetu. Í þessu samhengi er kannski athyglisvert að hugtakið forgangsorka er séríslenskt. Þetta er eitthvað sem er eiginlega ekkert notað, skilst mér, alla vega ekki í sama skilningi og við tölum um þetta, á meginlandi Evrópu, þessi skipting í forgangsorku og umframorku og svo þessi mikla umræða um orkuskort þegar staða í miðlunarlónum er með ákveðnum hætti og þá bregðast ákveðnir aðilar við og láta eins og það sé bara hægt að græja það allt saman með því að virkja meira. Það er bara ekki svo einfalt. Við getum alveg lent í nákvæmlega sömu stöðunni þótt við virkjum meira.
Varðandi Landsvirkjun og samninga við stórnotendur þá benti ég einmitt á það að þetta er í raun það sem Landsvirkjun reyndi bæði árið 2022 og núna í upphafi þessa árs. Ég veit ekki nákvæmlega hvernig fyrirtækinu reiddi af í þessu en eftir því sem ég best veit þá var einungis í boði að kaupa orkuna á uppsprengdu verði. Nú veit ég ekki nákvæmlega hvernig svona samskipti fara fram, hvort Landsvirkjun hefur nánast ótakmarkað svigrúm til að hringja í þá sem hún á í samningssambandi við og græja meiri orku. En einhvern veginn virðist þetta ekki hafa gengið og þá veltir maður fyrir sér hvort það sé ekki það sama upp á teningnum þegar kemur að Landsneti og jöfnunarorkumarkaðnum. (Forseti hringir.)
Ég kem kannski inn á fjarvarmaveiturnar í seinna svari.