raforkulög.
Frú forseti. Það virkar nefnilega dálítið undarlegt að í kerfi sem er háð náttúrulegum sveiflum þá sé notkunin öll bundin í iðnað þar sem er mjög mikil stífni í notkun. Maður hefði haldið að þarna hefði kannski verið viturlegt fyrir einhverjum árum eða áratugum að byggja upp kúltúr þar sem álverin reyna að draga sig aðeins saman þegar vatnsbúskapurinn minnkar. Og þau geta það vegna þess að þau þurfa að sinna ýmsu viðhaldi sem dregur úr raforkunotkun þar innan húss. Það þarf ekkert endilega formlegt samtal. Maður hefði haldið að þarna hefði kerfið bara lagað sig að því að við erum hér með náttúruauðlind sem er háð náttúrulegum sveiflum sem býr til orkuna okkar.
Varðandi fjarvarmaveiturnar þá þykir mér áhugavert að heyra hvað þingmaðurinn hefur að segja þar. Mögulega erum við að horfa inn í framtíð þar sem skerðanleg orka hættir að vera til og allt þarf að fara í forgangsorku. En þá erum við líka að tala um að reikningurinn hjá fjarvarmaveitum á Vestfjörðum tvöfaldast í það minnsta og það er kostnaður (Forseti hringir.) sem fer út í verðlagið. Samtalið hér þarf þá að snúast um hvernig (Forseti hringir.) við bætum Vestfirðingum það, hvernig við komum til móts við þau. (Forseti hringir.) Og það hefði náttúrlega þurft að fylgja þessu frumvarpi.