154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[12:43]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er rétt sem hv. þingmaður nefnir, þetta með fjarvarmaveiturnar. Í raun fór alveg ofboðslega lítið púður í einmitt þann þátt í efnisumfjöllun nefndarinnar um þetta mál, kannski að einhverju leyti vegna þess hversu snúin staða þetta er, að fjarvarmaveitur sums staðar hafa gert þessa skerðanlegu samninga. Annars staðar hafa verið gerðir samningar um forgangsorku. Það liggur fyrir að fjarvarmaveiturnar væru vart rekstrarhæfar með því að skipta yfir í forgangsorkuna, sem er miklu dýrari, og ég held að hér vakni bara mjög erfiðar spurningar. En ég held að það væri full ástæða til að kanna þessi mál betur ef málið fer aftur inn til nefndarinnar fyrir 3. umræðu. Ég held að það sé fullt tilefni til þess.

Varðandi stóriðjuna þá skulum við þó ekki gleyma því að það hefur verið gripið til skerðinga gagnvart henni, að álverin hafa að einhverju leyti þurft að draga saman seglin, draga úr starfsemi og það hefur líka kostað okkur útflutningstekjur. (Forseti hringir.) Þannig að það er ekki þannig að þau séu alveg stikkfrí þegar þessar aðstæður koma upp.