raforkulög.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessa ábendingu. Þriðji orkupakkinn heldur áfram að gefa og gefa. Ég vil kannski rétt benda á að það orðalag sem var áður inni í frumvarpinu þegar það kom fyrst hérna fram, um að miðað yrði við ákveðinn starfsmannafjölda og veltu. Það er í raun verið að leggja til breytingar á því til einföldunar í meirihlutaálitinu um að við skömmtun skuli njóta forgangs heimilisnotendur, mikilvægir samfélagsinnviðir og aðilar sem ekki hafa samið um skerðanlega notkun.
Varðandi sanngjarna verðið þá hef ég einmitt áhyggjur af því að ekkert mat hafi farið fram á því hvað það þýðir að allt í einu sé í raun Landsnet nauðbeygt til að semja við álverin um endurkaup á orku, að því er virðist algerlega óháð aðstæðum og án þess að það sé búin til einhver umgjörð um það, án þess að það sé t.d. eitthvert verðþak til að tryggja sanngjarnt verð eða þetta bundið við eitthvert magn. Ég veit auðvitað ekki hvernig væri best að útfæra það. En ég sakna þess einmitt að hvergi sé að finna í nefndaráliti meiri hlutans neina umfjöllun um það hvort og hvernig hægt verði að tryggja sanngjarnt verð þegar kemur til viðskipta af þessu tagi.