154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[12:48]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Það er nefnilega mjög áhugavert samhengi í öllum þessum orkumálum núna og þau koma einhvern veginn öll saman í þessari vöntun á pælingu. Það hefur verið rætt undanfarið um að það sé orkuskortur núna á Íslandi, sem er bara beinlínis ósatt þegar maður horfir til alla vega smærri fyrirtækja og heimila. Það er bara langt í frá að það sé mögulegur skortur á orku þar. Aðrir aðilar mega bara keppa um afgangsorkuna og borga alveg toppverð fyrir það, endilega. Það yrði gríðarlega verðmætaaukandi fyrir okkur sem stórframleiðendur á orku. En það sem bætist síðan við í þá umræðu er einhvern veginn að verið er að skjóta að möguleikanum fyrir stórkaupendur að orku að jafnvel framselja orku síðan í kjölfarið. Það er bara kvótakerfið upp á nýtt. Þá eru þeir einhvern veginn orðnir þessir milliliðir sem kaupa alla orkuna til að byrja með sem geta síðan aukið verðmæti hennar til að selja síðan (Forseti hringir.) til almennra notenda. Þetta er eitthvað sem við þurfum að girða algjörlega fyrir, (Forseti hringir.) að þarna verði búið til einhvers konar millistig sem getur einfaldlega blásið upp orkuverðið.