raforkulög.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður kom hérna inn á rafmyntagröft, sem er oft talað um í samhengi við þetta ójafnvægi í orkumálum milli framboðs og eftirspurnar. Ég hef ekki gríðarlegar áhyggjur af rafmyntagreftinum í þessu samhengi vegna þess að rafmyntagröftur byggir undantekningarlaust á samningum um skerðanlega orku og þetta er sú starfsemi sem fer fyrst undir hnífinn þegar kemur að skerðingum þegar það þarf að forgangsraða orku. Þetta er í raun orka sem — jú, ég meina, auðvitað væri eftirsóknarvert að selja hana í eitthvað annað en rafmyntagröft, en ég held að það séu mörg góð tækifæri fólgin í gagnaversiðnaðinum fyrir Ísland. Þetta eru tiltölulega fá en ágætlega launuð störf. Við erum með ákveðna hlutfallslega yfirburði vegna þess hvað það er kalt hérna. Og í mörgum tilvikum held ég að það sé kannski rafmyntagröftur í gagnaverum á fyrstu stigum (Forseti hringir.) framleiðslunnar en svo þróist það einhvern veginn. Það er eftirspurn eftir þessum iðnaði (Forseti hringir.) og hann gegnir ákveðnu hlutverki í stafrænu byltingunni. Þannig að meðan hann er á skerðanlegum samningum (Forseti hringir.) þá hef ég ekki miklar áhyggjur af þessu.