154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[12:59]
Horfa

Tómas A. Tómasson (Flf):

Virðulegi forseti. Kæra þjóð. Það er hlutverk okkar þingmanna hér að hugsa um velferð íbúa þessa lands. Og þar sem raforkuframleiðslan byggist á svokallaðri eign þjóðarinnar allrar þá er það er mikið atriði að við fáum rafmagn á sem lægstu verði og jafnvel á kostnaðarverði, eins og sagt er. Mér dettur í hug dæmisaga sem ég heyrði þegar ég var í Verslunarskólanum 1972, sem er eitthvað á þá leið að það var verið að vandræðast með það í Rússlandi hvað ætti að gera við atómúrgang. Menn komust ekki að neinni niðurstöðu þangað til einn stóð upp og sagði: Ég er með lausn. Og allir biðu spenntir eftir að heyra hver lausnin væri. Hann sagði eitthvað á þessa leið: Setjum allan kjarnorku- og atómúrgang bara í tíu ferðatöskur og setjum þær um borð í Síberíulestina og þeir sjá bara um að losa þetta.

Ég segi þetta vegna þess að ef svo skyldi fara að það þurfi að fara að skammta rafmagn vegna þess að það er ekki nóg vatn í uppistöðulónum eða einhverra annarra hluta vegna, það er bara ekki nóg framleiðsla á rafmagni, þá má það aldrei lenda á hinum almenna borgara. Almennur borgari notar ekki nema 5% af öllu því rafmagni sem framleitt er í landinu þannig að það er alveg út í hött að láta okkur sem eigum þessa auðlind bíða skaða af. Við eigum að fá það á lægsta verði og þetta verður bara að vera vandamál stóriðjunnar sem kaupir 80% af allri raforku á raforku sem framleidd er.

Mig langar til að lesa hérna örlítið fyrir ykkur, virðulegi forseti.

Frumvarp þetta er fyrsta skrefið í heildarendurskoðun regluverks um raforkuöryggi og er mikilvægt að skýrt sé kveðið á um hlutverk og skyldur allra aðila sem að raforku og raforkuöryggismálum koma, hvort sem um er að ræða vinnsluaðila, sölufyrirtæki, flutningsfyrirtæki, dreifiveitur eða eftirlitsaðila. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á raforkulögum, nr. 65/2003, sem snúa m.a. að því að tryggja almenningi og smærri fyrirtækjum forgang ef til skömmtunar kemur vegna óviðráðanlegra atvika og önnur úrræði duga ekki til. Einnig er í frumvarpinu mælt fyrir um söfnun og miðlun upplýsinga varðandi raforkuöryggi á heildsölumarkaði sem og viðmið fyrir raforkuöryggi. Raforkuöryggi og tryggt framboð raforku eru grundvallarþættir í þjóðaröryggi Íslands og nauðsynleg forsenda fjölbreyttrar atvinnustarfsemi og jákvæðrar byggðarþróunar.

Öruggt framboð raforku er því forsenda hagsældar. Yfirvofandi orkuskortur er verulegt áhyggjuefni og það er mikilvægt að útfæra viðmið um fullnægjandi raforkuöryggi, framboð á raforku og skýra hlutverk og ábyrgð aðila á raforkumarkaði til að tryggja raforkuöryggi. Breytingar frumvarpsins lúta að því að tryggja almenningi og smærri fyrirtækjum forgang komi til skömmtunar vegna óviðráðanlegra atvika, til að mynda vegna framboðsskorts.

Raforkuöryggi er mikilvægt og það er fagnaðarefni að það sé nú í brennidepli hjá stjórnvöldum, en á síðustu árum hefur nýting virkjana farið jafnt og þétt vaxandi og eftirspurn vaxið hraðar en sem nemur auknu framboði. Afleiðingin er minna svigrúm til að bregðast við áföllum í vinnslu og flutningskerfi raforku eða óvæntri minnkun á framboði til almennra notenda, t.d. ofvexti í orkusækinni í starfsemi sem fylgir ekki aukin orkuöflun. Eins og kom fram í umsögn Landsvirkjunar telur stofnunin að þetta ástand sé ekki tímabundið og að mikilvægt sé að brugðist verði við með lagabreytingum sem tryggi markvissari umgjörð um raforkuöryggi.

Eins og kom fram áður á frumvarp þetta sem við ræðum hér að tryggja almenningi og smærri fyrirtækjum forgang komi til skömmtunar vegna óviðráðanlegra atvika og önnur úrræði duga ekki til. Lögfesting þessa frumvarps er afar gott skref en mikilvægt er að ekki verði beðið lengi með næstu skref, t.d. að skýra leikreglur í umhverfi kerfisbundinnar umframeftirspurnar sem ekki stafar af óviðráðanlegum atvikum. Taka má undir sjónarmið umsagnaraðila, að slíkt ástand sé þegar komið upp á íslenskum raforkumarkaði, sem er áhyggjuefni.

Í umsögn Landsnets, sem meiri hluti nefndarinnar tók undir, kemur fram tillaga um að fellt verði út viðmið er snúa að skömmtun fyrir almennan notanda þar sem ljóst er að hlutverk dreifiveitna sé að koma raforku til hins almenna notanda og bendir Landsnet á að þegar séu í gildi reglugerðir og skilmálar sem taka á skerðingum og skömmtunum. Á einföldu máli er Landsneti veitt heimild til að mæta umframeftirspurn með nýtingu reglunarafls, skerðingum á ótryggðu rafmagni og skerðanlegum flutningi og nýtingu skerðingarheimilda hjá stórnotendum. Það er í eðlilegu samhengi að dreifiveitur og aðilar sem eru skilgreindir sem mikilvægir félagslegir innviðir fái að njóta forgangs til ef til skömmtunar raforku kemur.

Breytingartillaga í nefndaráliti er þess eðlis að taka út forgangsröðun til hins almenna notanda vegna þess að í skilmálunum settum á grundvelli raforkulaga sé nú þegar heimild fyrir Landsnet til skerðinga hjá stórnotendum og skammtanir. Reglugerðarheimild sú sem er í 2. og 3. gr. frumvarpsins kveður á um nánari útfærslu þar sem gætt skuli jafnræðis við skömmtun og byggt á málefnalegum sjónarmiðum.

Þessar greinar frumvarpsins fjalla um þau tilvik þegar sérstakar aðstæður eru fyrir hendi, þ.e. ófyrirséðir eða óviðráðanlegir atburðir. Breytingin er til bóta þar sem ekki er í gildandi lögum að finna fyrirmæli um forgangsröðun í tilviki skömmtunar og ekki síður með gildi jafnræðis og málefnalegra sjónarmiða að leiðarljósi. Í núgildandi reglugerð um kerfisstjórnun á raforkukerfinu, sem nær til orkuvinnslu flutningskerfis, raforkusölu og samskipta kerfisstjóra flutningskerfisins við kerfisstjórn dreifiveitna, kemur fram að kerfisstjóri skuli gæta jafnræðis við starfrækslu sína. Enn fremur kemur fram að við setningu reglna um skömmtun skuli kerfisstjóri gæta jafnræðis og leitast við að tryggja að skömmtun valdi sem minnstri röskun í samfélagslegum hagsmunum og m.a. leitast við að tryggja raforku til þeirra fyrirtækja og stofnana sem veita almenningi bráðaþjónustu og tryggja öryggi borgara og allsherjarreglu. Sambærilegt ákvæði er að finna í reglugerð um framkvæmd raforkulaga gagnvart dreifiveitum. Breyting sú sem lögð er til í frumvarpinu er því að útvíkka þetta þegar slíkt neyðarástand kemur upp vegna óviðráðanlegra aðstæðna og jafnframt að lögfesta heimildina í almennum lögum frekar en stjórnvaldsfyrirmælum og reglum kerfisstjóra svo að meginreglan verði með skýrari lagastoð. Það er álitamál hvort þeir notendur flutningsfyrirtækis og dreifiveitna sem teljast vera mikilvægir samfélagsinnviðir, m.a. út frá sjónarmiðum um almannaöryggi og þjóðaröryggi, ættu að vera skilgreind í reglugerð. Meiri hluti nefndarinnar telur það vera rétta aðferð enda er töluvert auðveldara að breyta reglugerð en almennum lögum. Það má þó velta fyrir sér hvort það væri ekki öruggara að þeir samfélagslegu innviðir sem enginn vafi er á að teljist mikilvægir séu nefndir í lögunum og svo verði aðrir taldir upp í reglugerðinni.

Hvað sem öðru líður rökstyður meiri hlutinn að samræmisskýring við lög og reglur með vísan til almannaheilla og mikilvægrar samfélagslegrar starfsemi séu haldbær rök til stuðnings þessarar niðurstöðu.

Virðulegi forseti. Mig langar að fjalla aðeins um umsögn Neytendasamtakanna sem barst um þetta mál á 153. löggjafarþingi. Að vísu sendu þessi samtök ekki inn umsögn nú í vetur en ég tel afar mikilvægt að halda á lofti hagsmunum almennra neytenda í þessu máli.

Í umsögn sinni sögðu Neytendasamtökin, með leyfi forseta, m.a. að það væri „áleitin spurning hvaða hlutverki heildsölumarkaður kemur til með að þjóna og hvort það séu vitrænar forsendur fyrir gerðar spár um eftirspurn. Heildsölumarkaður sem starfar við eðlilegar markaðsaðstæður getur átt þátt í því að hækka verð á raforku við tímabundinn orkuskort og þannig stuðlað að jafnvægi. En heildsölumarkaður á Íslandi er einfaldlega ekki á þeim stað“

Svo segir áfram, með leyfi forseta:

„Það verður einnig að hafa í huga óheppilegar afleiðingar virks heildsölumarkaðar. Almennir notendur raforku á Norðurlöndunum, í þeim hópi eru viðkvæmir notendur, hafa orðið illa fyrir barðinu á heildsölumarkaði (Nord Pool) þar sem skortstöðu hafa fylgt miklar verðhækkanir sem bæði almennir og viðkvæmir notendur hafa þurft að bera. Það ætti að vera víti til varnaðar. Þess vegna er mikilvægt að vernda alþjónustunotendur.“

Þetta eru mikilvæg varnaðarorð. Við viljum ekki að raforkuverð fari að sveiflast hér á landi eins og hlutabréfaverð fyrirtækja eða gengi rafmyntarinnar sveiflukenndu, bitcoin. Við viljum að almenningur í landinu fái raforkuna sem er eftir allt saman framleidd með notkun þjóðarauðlinda á kostnaðarverði. Samfélög víða um heim hafa gengið allt of langt í markaðsvæðingu raforkunnar og við þurfum við að beina sjónum okkar að þeirri vegferð sem hefur átt sér stað í löndum eins og Noregi, Bretlandi og Bandaríkjunum og gæta þess að við föllum ekki í sömu gildrur.