raforkulög.
Frú forseti. Hv. þingmaður er úr stjórnmálaflokki sem segir „fólkið fyrst“ og ég held að það sé það sem ætti að vera kjarninn í þessu máli hér að ef orku fer að skorta á Íslandi þá forgangsröðum við þannig að fyrst sé það fólkið sem eigi tryggan aðgang að orku bara til að halda hita og ljósum á heimilum sínum. Það er grunnskylda, myndi maður halda, þessa sameiginlega innviðar sem raforkukerfið er.
Frumvarp eins og þetta getur varið almenning, annars vegar fyrir skorti og hins vegar fyrir háu verði. Þetta fer oft saman. Við þekkjum dæmin t.d. þegar skerðanleg orka er uppseld og fjarvarmaveitur á Vestfjörðum neyðast til þess að fara að brenna olíu til að halda hita á heimilum á Vestfjörðum. Við þekkjum dæmið úr Vestmannaeyjum þar sem orkuverð hefur snarhækkað þannig að húshitunin eru allt í einu orðin einhver lúxus úti í Eyjum. Það er varla að fólk hafi efni á því lengur. Þess vegna þykir mér dálítið skrýtin sú staða — vegna þess að þetta er umhverfið sem frumvarpið sprettur upp úr — sú hneykslan, vil ég segja, sem varð hjá almenningi þegar við áttuðum okkur á því að það væri ekki til rafmagn til að Vestfirðir og Vestmannaeyjar gætu haft nóg af raforku á viðráðanlegu verði til þess að geta haldið hita á heimilum sínum. Það er upp úr þessu sem þetta frumvarp sprettur en svo er ekkert tekið á þeim þætti í þessu frumvarpi. Ég átta mig á því að það er mögulega eitthvað flóknara. Mögulega þarf að eiga sér stað eitthvert samtal til að gera fjarvarmaveitum kleift að kaupa forgangsorku á einhverju niðursettu verði eða styðja þær fjárhagslega til að kostnaðinum sé ekki velt út í verðlagið til fólksins á þessum svæðum. (Forseti hringir.) En það samtal hefði átt að eiga sér stað áður en þetta frumvarp kom hingað (Forseti hringir.) eða í nefndarvinnunni. Og hvað segir það okkur (Forseti hringir.) að hér sé ekki búið að leysa þennan þátt?