154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[13:13]
Horfa

Tómas A. Tómasson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og spurninguna. Ég er alveg sammála, sama hvað þá á hinn almenni borgari að fá rafmagn á niðursettu verði, á kostnaðarverði, og hann á að geta haldið uppi sínu heimilishaldi og þeim hlutum sem því fylgja og setja raunverulega öll vandamálin yfir á herðar stórnotenda sem verða bara einhvern veginn að finna út úr þessu svo við getum vel lifað í þessu þjóðfélagi.