154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[13:14]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Það er einmitt þetta með stórnotendurna vegna þess að þar ætti að vera svo auðvelt að sækja lausnirnar. Við erum með raforkukerfi þar sem 80% af orkunni renna til stórnotenda og það er bara handfylli fyrirtækja. Maður hefði haldið að í raforkukerfi eins og okkar þar sem framleiðslan sveiflast eðlilega eftir vatnafari — við erum að nota náttúruauðlind til að framleiða endurnýjanlega orku, þá er alveg eðlilegt að náttúrulegar sveiflur hafi áhrif á það hversu mikið framboð er af orkunni — þá hefði maður haldið að það hefði myndast einhvers konar sveiflumöguleiki í kerfinu miklu fyrr. Manni finnst einhvern veginn að þegar allir aðilarnir komast í kringum eitt eldhúsborð þá ætti að vera auðveldara að leysa þetta en við þurfum einhverja flókna löggjöf.

Hér hefur verið talað um að hjá þessum meinta orkuskorti, sem hefur verið síðustu tvo vetur, hefði verið hægt að komast með kannski 30–50 MW til viðbótar inni í kerfinu. Sum kerin í álverunum eru 2 MW. Þau þarf að endurnýja reglulega. Það þarf reglulega að brjóta þau niður og setja ný. Viðhald er hluti af rekstri álveranna. Það þarf ekki mörg ker úr umferð vegna reglubundins viðhalds til að fylla upp í þetta gat sem hér er verið að reyna að laga með flóknu regluverki. Og þar hefði þurft fyrir einhverjum áratugum að mynda bara einhverja mannlega tengingu milli þessara fyrirtækja (Forseti hringir.) þannig að þau sýndu samfélagslega ábyrgð með því að stilla viðhaldinu í takt (Forseti hringir.) við náttúrulegar sveiflur í orkubúskapnum. Nú eða bara að Landsvirkjun (Forseti hringir.) tali við álverin og segi: Heyrðu, það lítur illa út með veturinn. Gætuð þið passað að það sé dálítið mikið viðhald hjá ykkur í febrúar? (Forseti hringir.) Þetta á ekkert að vera mjög flókið.