154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[13:17]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þingmaður sagði hér í síðasta andsvari að það ætti að varpa ábyrgðinni yfir á stórnotendur og þeir yrðu að redda sér út úr því. Auðvitað get ég tekið undir að það skiptir gríðarlegu máli að verja fyrst og fremst heimilin og viðkvæmari rekstraraðila. Hins vegar langar mig aðeins, á annan hátt þó, að koma inn á það sem hv. þm. Andrés Ingi Jónsson ræddi, sem er umgengni um orkuna, skynsemi og ábyrgð fyrirtækja. Við Íslendingar höfum allt of lengi gengið út frá því sem vísu að orka sé ótæmandi auðlind hér í landi. En hún er það svo sannarlega ekki og af mörgum ástæðum. Bara t.d. í seinni tíð hefir okkur orðið það æ ljósara hversu mikilvægt það er fyrir okkur að eiga ósnortnar náttúruperlur og vonandi munum við leyfa okkur takmarkaðri inngrip í framtíðinni en við höfum gert hingað til. Þetta á auðvitað að beina sjónum okkar að því að við þurfum að nýta orkuna sem best. Við verðum að hætta að sóa orku. Þetta á alveg við um heimili þar sem áætlað er að 30–40% af orku og húshitun sé sóað bara vegna þess að fólk gengur um íbúðirnar með þeim hætti að það eru opnir gluggar og dyr svo tímunum skiptir vegna þess að orkan hefur verið ódýr. Í nefndaráliti meiri hlutans er vikið að notkun glatvarma í iðnaði, þ.e. að það sé hægt að virkja gufu eða heitt vatn frá iðnaði innan sömu ferla. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann telji ekki að það þurfi að fara af stað skýr áætlun um það með hvaða hætti við getum nýtt orkuna betur en við erum að gera í dag, bæði í smáum og stórum skala.