154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[13:20]
Horfa

Tómas A. Tómasson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrirspurnina. Mér dettur í hug þegar ég var strákur í sumarbústað á Þingvöllum þá vorum við krakkaskarinn að hlaupa inn og út úr húsinu endalaust og skildum alltaf dyrnar eftir opnar. Þá sögðu mömmurnar: Sko, við ætlum ekki að hita upp vellina — við vorum á Þingvöllum — þ.e. af því að rafmagnið var keypt frá Valhöll þannig að það var ekki ódýrt.

En til að svara spurningu hv. þingmanns þá langar mig til að endurtaka það sem ég sagði hérna áðan: Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á raforkulögum, nr. 65/2003, sem snúa m.a. að því að tryggja almenningi og smærri fyrirtækjum forgang komi til skömmtunar vegna óviðráðanlegra atvika og önnur úrræði duga ekki til. Einnig er í frumvarpinu mælt fyrir um söfnun og miðlun upplýsinga varðandi raforkuöryggi á heildsölumarkaði sem og viðmið fyrir raforkuöryggi. Raforkuöryggi og tryggt framboð á raforku eru grundvallarþættir í þjóðaröryggi Íslands og nauðsynleg forsenda fjölbreyttrar atvinnustarfsemi og jákvæðrar byggðaþróunar. Öruggt framboð raforku er því forsenda hagsældar. Yfirvofandi orkuskortur er verulegt áhyggjuefni og það er mikilvægt að útfæra viðmið um fullnægjandi raforkuöryggi, framboð á raforku og að skýra hlutverk og ábyrgð aðila á raforkumarkaði til að tryggja raforkuöryggi þjóðarinnar. Breytingar frumvarpsins lúta að því að tryggja almenningi og smærri fyrirtækjum forgang komi til skömmtunar vegna óviðráðanlegra atvika, til að mynda vegna framboðsskorts.

Og hvað erum við að horfa fram á núna? Allt í einu vantar vatn í uppistöðulónin. Þetta er eitthvað sem við hefðum fyrir nokkrum árum síðan ekki látið okkur detta í hug að gæti skeð. Það eru alltaf að koma upp alls konar hlutir í þessu þjóðfélagi, náttúruhamfarir og annað, sem geta orðið til þess að við getum ekki framleitt allt það rafmagn sem við þurfum til að lifa eðlilegu lífi hérna.