raforkulög.
Já, frú forseti. Náttúran er duttlungafull og við getum auðvitað átt von á því að uppistöðulónin tæmist og einstakar virkjanir jafnvel verði óstarfhæfar vegna náttúruvár. Ýmislegt er jafnvel dálítið okkur sjálfum að kenna síðustu 150 árin, með hegðun okkar, að náttúran er orðin óútreiknanlegri. Ég kannast alveg ágætlega við svipaðar setningar og hv. þingmaður nefndi í tengslum við ferðir sínar til Þingvalla; ef útidyr voru búnar að standa opnar of lengi heima hjá mér þá kallaði pabbi gjarnan fram úr stofu: Ætlarðu að kynda upp allt nágrennið? Aðhaldið þá fólst í því að það var verið að kynda upp íbúðirnar með olíu sem vó bara mjög þungt í heimilisbókhaldinu. Síðan höfum við eignast þessa ódýru hitaveitu og við göngum bara of gáleysislegan um þetta. Það á alveg jafnt við um heimilin og iðnaðinn. Nú býst ég við að heimilisnotkunin vegi kannski ekki þyngst í þessu heldur þurfi að beina sjónum að iðnaðinum. En ef við förum að sýna ábyrgari hegðun er líka auðveldara fyrir okkur að gera kröfu á iðnaðinn. Við erum að byggja verksmiðjur þar sem við notum gríðarlega orku til að kæla einhver tæki innan dyra sem framkalla svo gríðarlegan hita sem við dælum jafnvel bara út í sjó og eyðileggjum jafnvel lífríkið þar fyrir utan. Spurningin, sem ég ætla bara að endurtaka, er hvort hv. þingmaður er ekki sammála mér um það að samhliða því að við þurfum vissulega að huga að því að halda áfram að framleiða rafmagn og orku eftir því sem við teljum að það þurfi, þurfum við bara að gera átak í því að fara að nýta hana miklu betur.