raforkulög.
Frú forseti. Við ræðum þetta stórmerkilega mál sem er frumvarp um breytingu á raforkulögum til að tryggja almenningi aðgang að raforku. Að hugsa sér, við erum að tryggja almenningi aðgang að nauðsynlegri raforku. Hver hefði trúað því að slík staða skyldi nokkurn tíma vera teiknuð upp? En hún er komin til vegna þess að ríkisstjórnin hefur gjörsamlega gjörrústað orkustefnu þjóðarinnar og þess vegna þarf almenningur nú hreinlega að koma með vernd gegn þeim Evrópureglum, sem hugsanlega myndu annars verða hér ofan á, um markaðsvæðingu raforku sem myndi leiða til þess að fyrirtæki myndu yfirbjóða almenning á fjármálavæddum orkumarkaði og heimili landsins yrðu mörg hver að berjast fyrir því að fá rafmagn.
Sú þróun sem við erum að horfa upp á í orkunni okkar í dag er náttúrlega sárari en tárum taki. Við framleiðum næga orku. Það er enginn sem skilur það sem veit um hvað er rætt eins og þeir sem horfa á offramleiðslu orkunnar sem þeir geta ekki nýtt, sem þeir koma ekki til notenda. Það eru fimm ár síðan talað var um og vitað var af að um 30% af framleiddri orku hér sem komst ekki til notenda vegna þess að dreifikerfið er ekki orðið nógu gott, bæði hvað lýtur að Vestfjörðum og eins vitum við um Suðurnesin. Það er í rauninni óafsakanlegt í því árferði þegar við erum að tala um orkuskipti og mengun vegna jarðefnaeldsneytis að við skulum vera að brenna meiri olíu núna árið 2023 og væntanlega 2024 en við höfum sennilega nokkurn tíma séð. Milljónum og aftur milljónum lítra af olíu þurfum við að brenna hér í þeirri loftslagsvá sem við glímum við vegna vanhæfrar ríkisstjórnar, vegna vangetu stjórnvalda til að takast á við verkefni sem liggja augljóslega fyrir.
En skyldi það þá vera þannig að það séu vanhæf stjórnvöld? Skyldi það vera vangeta stjórnvalda eða skyldi það vera einbeittur vilji stjórnvalda að vera með skortstefnu á raforkumarkaði eins og þau hafa rekið hér, skortstefnu á öllum öðrum markaði til þess að einkavæða hana og koma henni í fangið á sínum útvöldu gæðingum í pilsfaldakapítalismamarkaðshagkerfinu sem hér er rekið svo ötullega í dag? Þessi vandi hefur blasað svo lengi við að það er ekki einu sinni hægt að setja puttann á það. Það er búinn að vera einbeittur vilji stjórnvalda að reka hér skortstefnu. Nú er komin kauphöll um orkuna okkar. Það er allt gert, það er allt gert annað en að tryggja þessum tæplega — hugsið ykkur það, heimilin eru að nýta tæplega 5%. Um 4,7% af allri framleiddri orku fer til heimilanna í landinu. Það er nú allur obbinn. Hvers vegna skyldum við þurfa að vera að tryggja heimilunum forgang þegar heimilin nýta ekki nema innan við 5% af orku sem framleidd er í landinu í dag? Skilaboðin eru: Sjáið þið ekki vána sem er fyrir höndum? Við verðum að virkja meira. Við verðum að gera meira og við verðum að koma með kauphöll. Við verðum að gera allt, hvaðeina, af því að við erum ekki enn þá búin að tengja okkur við Evrópumarkaði. Af því að við erum ekki enn þá farin að geta grætt á því að selja orkuna okkar til Evrópu í gegnum þriðja orkupakkann, bráðum fjórða orkupakkann og alla þessa orkupakka, þrátt fyrir að við séum örríki norður í ballarhafi og höfum ekkert með þessa orkupakka að gera, séum með algera undanþágu frá því að ganga inn í kerfi Evrópubandalagsins sem kemur okkur akkúrat ekkert við. Þannig að núna á að markaðssetja orkuna okkar í gegnum kauphöll. Ég er eiginlega alveg að verða kjaftstopp af því að þurfa að vera áhorfandi að því hvernig þessi stefna er rekin og að fólk skuli ekki vakna og sjá hvað er í gangi og að þessi ríkisstjórn skuli ekki fá 0% stuðning í hverri einustu skoðanakönnun því að það er nákvæmlega það sem hún á skilið. Það er ekkert betra sem þessi ríkisstjórn á skilið. Þannig að ég segi enn og aftur: Það er rekin hér lóðaskortsstefna í borginni. Það er rekin hér húsnæðisskortsstefna. Þarf einhver að láta sér detta það í hug að við þurfum að vera með þennan húsnæðisskort? Þetta er löngu fyrirséð. Hver hefur ekki heyrt það að okkur fjölgi hratt? Hver hefur ekki heyrt að við verðum of gömul? Hver hefur ekki heyrt að það þurfi að byggja meira, byggja meira og byggja meira? Spurningin er einfaldlega þessi: Af hverju gerum við það þá ekki? Hvernig stendur á því að við erum með Keldnalandið hérna sem var látið vera einhver útborgun fyrir borgarlínu sem löngu er búið að slá út af borðinu af því að enginn veit hvort hann er að koma eða fara í þeim efnum? Af hverju er ekki búið að búa til nýtt hverfi í Keldnalandinu t.d.? Nýtt Breiðholtshverfi, nýtt Grafarholtshverfi eða nýtt Grafarvogshverfi? Af hverju ekki? Vegna þess að hér er rekin skortstefna sem á að verða þess valdandi að fasteignirnar okkar hækka gjörsamlega upp úr öllu valdi.
Það er orðið ómögulegt fyrir nokkurn mann að fjárfesta og koma sér þaki yfir höfuðið, nákvæmlega ómögulegt nema þú sért með fulla vasa fjár eða eigir moldríka foreldra sem geta hjálpað þér við að koma þaki yfir höfuðið. Þannig að þessi kapítalismi sem rekinn er hér þar sem elítan og auðvaldið á gjörsamlega að hirða til sín allt sem við eigum — við erum búin að sjá hvernig þau hafa farið með sjávarauðlindina okkar. Við höfum séð hvernig kvótakerfið hefur farið með litlar sjávarbyggðir allt í kringum landið. En hvað er gert í því? Því er haldið áfram að leyfa því að þróast. Það á bara að malbika yfir landsbyggðina. Það er bara það sem er verið að gera. Það er ömurlegt og nöturlegt að horfa upp á litlar byggðir hér eins og litla bæinn minn, Ólafsfjörð, hvernig er búið að skera hann á púls og hvernig honum er smám saman að blæða út. Fólksfækkun með eindæmum.
En það er það sama. Nú er það orkuauðlindin. Þeir geta ekki komið núna og sagt: Við ætlum bara að selja Landsvirkjun til vina og vandamanna. Við ætlum bara að láta auðvaldið hirða Landsvirkjun. Við ætlum að brytja hana niður og selja hana á uppboði hér og hvar. Komi þeir sem eiga peninga og komi þeir og búi þá til vegna þess að eitt er víst, það er alveg sama hvort það er heilbrigðiskerfið, húsnæðiskerfið, orkukerfið, við þurfum alltaf á þessu að halda allt okkar líf. Og eftir okkar daga þá kemur ný kynslóð og ný kynslóð eftir það. Allar þessar kynslóðir þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda, þurfa á húsnæði að halda og vilja gjarnan geta kveikt á ljósaperunni heima hjá sér. En er þessi ríkisstjórn að tryggja það? Nei, hún er bara að tryggja það að ákveðnar fjölskyldur gæti sölsað undir sig allt sem við eigum, alveg sama hvað það heitir.
Og það skiptir ekki einu sinni máli hvort það verpi gulleggjum eins og bankarnir hafa gert, hvort Íslandsbanki skilar 170 milljörðum í hreinan hagnað eins og hann hefur gert á síðustu tíu árum, það á samt að selja hann. Það á samt að koma honum í opið söluferli núna sem allir vita að enginn hefur efni á nema þeir sem eru með fulla vasa af peningum vegna þess að verðbólga, brjálæðisvextir og hagstjórnin eða hagstaða heimilanna er slík að þeir sem eru í millistétt og þeir sem eru þar fyrir neðan, þeir eiga varla til hnífs og skeiðar og ná ekki endum saman. Þeir munu örugglega ekki snara fram milljón til að fá að taka þátt í partíinu þegar Íslandsbanki verður eina ferðina enn seldur á undirverði til vina og vandamanna. Það liggur á borðinu.
En ég er að segja að einhverra hluta vegna er þetta ítrekað það sem við horfumst í augu við. Við í Flokki fólksins viljum standa vörð um orkuna okkar. Og vitandi það að akkúrat núna í dag eru tæplega 25% af framleiddri orku sem liggja bara einhvers staðar í bið og hefði verið hægt að koma á markaðinn ef dreifikerfið hefði verið í lagi. Hvers vegna skyldi gata Landsnets ekki vera greidd, sem fyrir löngu síðan er búið að teikna upp allar sínar aðgerðaáætlanir til að koma á alvöruhringtengingu raforku í kringum landið? Hvernig stendur á því að við sitjum hér uppi með eitthvað sem næstum því var orðið að neyðarlögum hérna fyrir jólin? Það lá við að við þyrftum að grípa til einhverra neyðarlaga fyrir jólin til að tryggja það að heimilin í landinu gætu kveikt jólaseríunum. Það var þannig sem okkur leið með það, hvorki meira né minna. En það er sorglegra en tárum taki að þurfa að horfa upp á það hvert sem litið er. Og þegar við vorum t.d. að horfa upp á það hvers lags vandi það var að koma á þessari línu í sambandi við Blöndu, hvernig vandinn var þegar við vorum að reyna að koma tengingu frá Kröflu og til Akureyrar til að koma á aukinni orku þar þannig að það þyrfti ekki að vera að starta ítrekað á álagstímum einhverjum olíukútum og brenna meiri olíu. Hvers lags stjórnvöld eru þetta? Og svo er búið að vera málarekstur um Suðurnesjalínu svo árum skiptir af því að einhverjir vilja ekki fá þá línu til sín. Löggjafanum er í lófa lagið að tryggja hagsmuni samfélagsins í heild sinni. Löggjafanum og stjórnvöldum ber skylda til þess að axla þá ábyrgð að gera það sem gera þarf til að tryggja öryggi samfélagsins á hvaða sviði sem er. Til þess erum við kjörin hér. Til þess stend ég hér, alþingismaður, kjörinn fulltrúi á ofurlaunum. Það er til að vinna fyrir samfélagið í heild sinni, ekki maka krókinn, skara eld að eigin köku og loka báðum augunum fyrir því sem betur mætti fara.
En nú er enn rifist um Suðurnesjalínu. Málarekstur, málarekstur. Kostnaðurinn orðinn slíkur og þvílíkur að ég hef ekki einu sinni tölur á blaði um það. Hugsið ykkur. Stjórnvöldum er í lófa lagið og er það í rauninni tryggt í stjórnarskrá lýðveldisins Íslands að ef þurfa þykir þá er stjórnvöldum í lófa lagið og ríkisvaldinu að taka eignarnámi ef það er talinn vera meiri hagur fyrir samfélagið í heild sinni heldur en að gera það ekki. Og við greiðum fyrir það fullt verð. Svoleiðis hljóðar það nú. Ég er viss um að með öllum þessum málarekstri og þessu hangsi og þessu rugli, þessari ákvarðanafælni sem hér ríður röftum í þessu fallega húsi, þá erum við sjálfsagt margsinnis búin að borga fyrir eignarnámið og það væri margsinnis búið að koma á þessari Suðurnesjalínu. Það væri margsinnis búið að hringtengja landið hérna ef þessi stjórnvöld kærðu sig um það og rækju ekki hér hafta- og skortstefnu eingöngu til að sölsa undir sig raforkuauðlindina.
Ég ætla bara að ítreka það að það er innan við 5% af orkunni okkar sem fer í öll heimili landsins. Tæplega 96% fara í annað. Ef það eru ekki heimilin og ekki fjölskyldurnar sem á að vernda og tryggja þá veit ég ekki hvað, því að það er eitt að reka samfélagið okkar og þurfa á því að halda að fyrirtækin okkar beri sig og það er allt annað að fótum traðka réttindi og hagsmuni samfélagsins í heild sinni eins og hér hefur verið gert svo árum skiptir. Allt sem við erum að glíma við hér í dag er mannanna verk. Allt sem við tökumst á við hvern einasta dag hér er mannanna verk. Öll þau verkefni þar sem allir eru með niðrum sig hér sem stýra þessu landi eru einmitt þeirra verk eða verkleysi.
Þannig að ég segi að það sem við þurfum að gera er að sjá til þess að þjóðin eigi áfram auðlindirnar sínar. Það hefur nú reynst þrautin þyngri að breyta stjórnarskránni í þá átt að tryggja auðlindir í þjóðareign. Hér hef ég staðið, ég sat og stóð til skiptis í 109 klukkustundir á síðasta kjörtímabili með formönnum þingflokka til að leitast við að breyta stjórnarskrá. Á hverju haldið þið að hafi strandað? Auðvitað pilsfaldakapítalismanum. Auðvitað þeim sem verja auðvaldið. Auðvitað þeim sem vilja hirða auðlindirnar okkar. Auðvitað strandar það sérstaklega á Sjálfstæðisflokknum að tryggja auðlindir í þjóðareign. Hver skyldi ekki vilja tryggja auðlindir í þjóðareign? Og er þá ekki ástæða til að velta því fyrir sér: Af hverju vilja þeir ekki tryggja auðlindir í þjóðareign? Af hverju ekki? Af hverju er núverandi hæstv. forsætisráðherra Bjarni Benediktsson aldrei spurður að því af hverju hans flokkur vill ekki tryggja auðlindir í þjóðareign? Af hverju fara fjölmiðlar og aðrir silkihönskum um þá sem við sjáum leynt og ljóst gera nákvæmlega það sem þeim sýnist í krafti valds síns? Þeir axla ekki einu sinni ábyrgð á því að brjóta lög og þeir eru látnir komast upp með það. Hvurslags eiginlega bananalýðveldi er þetta, virðulegi forseti? Þannig að ég segi: Meira að segja Hvammsvirkjun. Nei, nei, ég ætla ekki að tala um Hvammsvirkjun, það er búið að vera að slást um hana nú ansi lengi og það er búin að vera svo mikil hringavitleysa að þrátt fyrir að það gæti gjörbreytt stöðunni fyrir vestan þá hefur fæðingin verið slík og þvílík að það er orðið mörgum sinnum lengra heldur en margföld meðganga fílsins.
En við skulum vona að það sé eitthvað að horfa til betri vegar. Nei, en í staðinn þá komum við hér með hverja virkjunina á fætur annarri, 9,9 MW virkjanir hér úti um allt. Það þarf ekki einu sinni fara í umhverfismat, ekki neitt. Það er hægt að virkja hverja einustu sprænu hér, bara alveg út um allt og það er bara allt í lagi. Svoleiðis er nú umgengnin og svoleiðis er kærleikurinn fyrir landinu okkar. Það skiptir engu máli hvar spretta upp virkjanir hér eins og gorkúlur og svo núna eru það nýju vindorkuverin. Fyrir hverja ætli það sé nú aftur? Hvers vegna er verið að láta líta hér út fyrir að það sé orkuskortur í landinu þegar það er ósatt? Það er næga orku að hafa en það vantar tengingu. Það vantar að koma henni þangað sem hún vill fara, þar sem er þörf fyrir hana. Að horfa upp á það fyrir vestan að þúsundir eða réttara sagt milljónir lítra af olíu voru brenndar þar í fyrra. Og núna á Höfn í Hornafirði fyrir jólin þegar var verið að kaupa nýjan enn þá stærri olíukút til að geta brennt enn þá frekari olíu vegna þess að það vantar orku. Að kaupa olíu til að búa til rafmagn — hvurslags rugl er það? Íslenska þjóðin á raforkuauðlindina. Íslenska þjóðin á Landsvirkjun og á alltaf að eiga Landsvirkjun. Okkur var talin trú um það á sínum tíma að þegar við værum búin að greiða fyrir alla uppbyggingu, allan kostnað, þá myndi íslenska þjóðin, íslenskir skattgreiðendur, heimilin og fyrirtækin í landinu sannarlega fá að njóta ávaxtanna.
En í staðinn þá er búið að klippa niður orkureikninginn okkar þannig að það er enginn venjulegur einstaklingur sem er ekki hagfræðimenntaður eða sem hefur kynnt sér það selt sérstaklega eða hefur farið á námskeið út af því sem botnar upp eða niður í orkureikningnum sínum. Við vitum ekkert hvern við eigum að láta dreifa til okkar orkunni eða selja okkur orkuna. Eina sem við vitum er hver framleiðir hana. Eftir að við innleiðum orkupakkana, sem á að vera svo ofboðslega fínt fyrir þetta litla hagkerfi okkar, litla samfélag okkar, þá er það orðið þrískipt. Þá er búið að bæta við tveimur milliliðum. Dettur einhverjum í hug að það kosti ekki neitt?
Og hver er það sem borgar brúsann? Skattgreiðendur auðvitað eins og allt annað. Þannig ég segi bara að það hvernig farið er með samfélagið hérna, hvernig er komið fram við okkur hérna er gjörsamlega síðasta sort, algerlega síðasta sort. Og það er algjört lágmark, það er algjört lágmark að ef við erum ekki sátt við það hvernig er komið fram við okkur, hvernig er rekin hér hafta- og skortstefna á öllum sviðum til að sprengja hér upp verðlagið, til að tæma hér hverja einustu krónu, þannig að þeir sem hafa ekki milljónir á mánuði eru gjörsamlega orðnir blankir eftir viku, tvær vikur í hverjum einasta mánuði, ef við sýnum það ekki í verki þegar við göngum til kosninga á næsta kjördag að við mótmælum þessu. Við kærum okkur ekki um þetta ofríki, þessa sjálftöku, þennan þjófnað á auðlindunum okkar og hvernig farið er með samfélagið í heild sinni og hvernig þeir sem minna mega sín eru fótum troðnir, settir hjá garði og litið á sem tíundu þjóðfélagsþegna.
Þannig að það er í ykkar höndum, kæru landsmenn, hvernig þið ætlið að taka á því að láta þessa einstaklinga axla ábyrgð og sýna þeim í tvo heimana. Þeir eiga ekkert erindi á valdastóla hér, ekki neitt. Það sem þeir eru að gera er að skemma samfélagið okkar eins og það leggur sig. Það er að skemma fyrir íslenskum almenningi sem unnvörpum leggur á flótta og reynir að flýja eitthvað annað þar sem er ódýrara að lifa. Og að þurfa að vera að koma með frumvarp til að tryggja heimilunum forgang á raforku — þetta er svo galið að ég hefði varla búist við því að maður þyrfti nokkurn tímann að lifa þann dag að hægt væri að teikna upp það kerfi og telja okkur trú um að þessi rúmlega 4% sem heimilin nota, að við þurfum sérstakt frumvarp til að tryggja þeim aðgang að þessum 4 komma eitthvað prósentum. Hvers lags rugl er það?
Þannig að ég segi bara enn og aftur: Þeir sem bera ábyrgð á öllu því sem við erum að ganga í gegnum hér, sjálftöku, einkavinavæðingu, hvernig auðlindirnar okkar eru fótum troðnar hægri vinstri, haftastefna, skortstefna, til að þeyta upp verði á öllum hlutum, það er mannanna verk og það er á ábyrgð þessarar ríkisstjórnar. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)