raforkulög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það sem ég vil gera, byrja þar, og við í Flokki fólksins, er að við tökum undir með þeim gögnum og skýrslum sem við höfum séð á möguleikanum á því að hringtengja hér landið okkar þannig að flæði orkunnar fái að njóta sín í hverri einustu frumu þjóðarlíkamans. Það er til framtíðar og þá væri ekki umræða um neinn orkuskort. Þá væri ekki verið að brenna neinni olíu. Eins og við vitum þá hefur þessi ríkisstjórn gjarnan, a.m.k. pínulítill hluti af henni sem nánast er að hverfa núna, mikið talað um græna orku og hvað við þurfum að passa okkur á loftslagsvánni. En á sama tíma brenna þau 66 tonnum af kolum á Bakka og á sama tíma neyða þau einstaklinga eða fyrirtæki til að brenna olíu til að búa sér til rafmagn vegna þess að hringtengingin hefur algjörlega legið í láginni. Þannig að í raun og veru þá þurfum við að koma þessari hringtengingu á. Við þurfum að tryggja auðlindina til heimilanna. Burt með allan markaðsbúskap hvað lýtur að því að höndla með þetta eins og þetta sé eitthvert hlutabréf í Íslandsbanka. Bara ekkert svoleiðis. Þetta er sérstaks eðlis. Þetta er raforkan okkar og í raun og veru á að tryggja þetta, það á ekki einu sinni að þurfa að koma með frumvarp til að tryggja 4,2% orku til heimila landsins, bara engan veginn. Framtíðarsýnin er björt. Það eina sem hefur verið, einu þyrnarnir sem hafa verið í veginum eru í stjórnvöld sjálf sem hafa dregið lappirnar í því að tryggja það að hlutirnir gangi eins og þeir eiga ganga miðað við þá auðlind og þau tækifæri sem við höfum hvað hana varðar.