154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[13:51]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla bara enn og aftur að þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Varðandi t.d. punktinn um línulagnir, hv. þingmaður kom inn á mál Suðurnesjalínu tvö, minnir mig. Málið var tekið fyrir í Hæstarétti. Þar var dómur héraðsdóms felldur úr gildi en ég ætla ekkert endilega út í það. Þegar kemur að því að hringtengja landið þá þarf væntanlega að leggja nokkrar línur í viðbót en þar mun mögulega reyna á eignarnám. Og ákvörðun Hæstaréttar í máli Suðurnesjalínu tvö var einmitt að það hafi verið farið út fyrir meðalhófsskilyrði stjórnarskrárinnar þegar kemur að eignarnámi. Því vil ég spyrja hv. þm. Ingu Sæland hvort hún sé sammála mér og hvort það sé tilefni fyrir stjórnvöld þegar kemur að — ef við skyldum útfæra þessa stefnu Flokks fólksins um að hringtengja landið og þar af leiðandi leggja fleiri línur, hvort það yrði ekki gætt hófs við beitingu eignarnámsheimildarinnar í stjórnarskránni, jafnvel þó að það sé í þágu (Forseti hringir.) almennings og raforkuþarfar almennings.